Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forsætisnefnd - 175. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Ársreikningur 2020.

II. Viðauki við fjárhagsáætlun 2021.

III. Starfsreglur og inn- og útskriftarreglur sérdeilda í grunnskólum Kópavogs.

IV. Önnur mál - fundargerðir.

V. Kosningar.

Almenn mál - umsagnir og vísanir

02

Reglur um styrki til stjórnmálaflokka í formi kaupa á auglýsingum

Frá lögfræðideild, dags. 10. mars, lögð fram umsögn um styrki til stjórnmálaflokka í formi kaupa á auglýsingum í tilefni af framlögðum drögum að reglum um auglýsingastyrki til stjórnmálaflokka.

Um framlög til stjórnmálaflokka fer skv. lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006. Í 5. gr. framangreindra laga er mælt fyrir um skyldu fjölmennari sveitarfélaga til að veita framboðum til sveitarstjórnar fjárstuðning. Ríkisendurskoðun hefur gefið út leiðbeiningar um reikningshald stjórnmálaflokka, sbr. IV.kafla framangreindra laga. Þá hefur Samband íslenskra sveitarfélaga gefið út viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka á grundvelli sömu laga. Fyrirkomulag framlaga bæjarstjórnar Kópavogs hefur verið í samræmi við framangreint lagaumhverfi um fjármál stjórnmálaflokka.

Þrátt fyrir heimild samkvæmt framangreindum lögum og leiðbeiningum settum á grundvelli þeirra, leggur forsætisnefnd til við bæjarstjórn að auglýsingum á vegum Kópavogsbæjar verði hætt í útgáfum á vegum stjórnmálaflokka. Þá leggur forsætisnefnd jafnframt til að endurskoðun á fjárframlögum til stjórnmálaflokka verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.