Forsætisnefnd - 253. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
- Sigurbjörg Erla EgilsdóttirBoðaði forföllSigurbjörg Erla EgilsdóttirSat fundinn í staðinn
- Björg Baldursdóttir - 2. varaforseti
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir - embættismaður
Ritari
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir
Dagskrá fundar
Dagskrá bæjarstjórnarfundar 14. apríl 2026.
I. Dagskrármál.
II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.
III. Kosningar.
Frá bæjarstjóra, dags. 01.04.2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir afstöðu forsætisnefndar um hvort að bæjarfulltrúi Pírata hafi brotið siðareglur kjörinna fulltrúa.
Forsætisnefnd fjallaði um málið á fundi sínum 03.04.2024 og frestaði því á milli funda. Starfsmanni nefndarinnar var falið að afla frekari upplýsinga um í hvaða farveg álitamál varðandi siðareglur fari innan stjórnkerfisins.
Nú lagt fram minnisblað lögfræðideildar, dags. 04.03.2026 um farveg fyrir álitamál varðandi siðareglur.
Umræður.
Frestað til næsta fundar.
Forsætisnefnd vísar erindinu frá með vísan í minnisblað lögfræðiþjónustu dags. 04.03.2026, þar sem það fellur ekki undir hlutverk nefndarinnar að taka afstöðu í málum sem þessum.
Frá bæjarfulltrúa Pírata, Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, dags. 01.04.2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir afstöðu forsætisnefndar um hvort bæjarstjóri Ásdís Kristjánsdóttur hafi brotið gegn siðareglum kjörinna fulltrúa, 7. gr.
Forsætisnefnd fjallaði um málið á fundi sínum 03.04.2026 og frestaði því á milli funda. Starfsmanni nefndarinnar var falið að afla frekari upplýsinga um í hvaða farveg álitamál varðandi siðareglur fari innan stjórnkerfisins.
Nú lagt fram minnisblað lögfræðideildar, dags. 04.03.2026 um farveg fyrir álitamál varðandi siðareglur.
Umræður.
Frestað til næsta fundar.
Forsætisnefnd vísar erindinu frá með vísan í minnisblað lögfræðiþjónustu dags. 04.03.2026, þar sem það fellur ekki undir hlutverk nefndarinnar að taka afstöðu í málum sem þessum.