Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forsætisnefnd - 259. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - forseti
  • Einar Jóhannes Guðnason - 1. varaforseti
  • Orri Vignir Hlöðversson - 2. varaforseti
  • Eydís Inga Valsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 22. september 2026.

I. Dagskrármál.

II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.

III. Kosningar.

Almenn mál

02

Boð til Bæjarstjórnar Kópavogs og fundatími bæjarstjórnarfundar 10. nóvember 2026

Frá Menntaskólanum í Kópavogi, lagt fram erindi þar sen bæjarstjórn er boðið í hádegisverð og kennslustund í skólanum þann 10. nóvember 2026.

Forsætisnefnd leggur til við bæjarstjórn að þiggja boð Menntaskólans í Kópavogi og að fundur bæjarstjórnar hefjist kl. 15:00 þann 10. nóvember n.k.

Almenn mál

03

Tillaga bæjarfulltrúa minnihluta um fela forsætinefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og notkun samfélagsmiðla

Lögð fram tillaga frá fulltrúum Miðflokks, Samfylkingar og Viðreisnar um að fela forsætisnefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og notkun samfélagsmiðla.

Bæjarráð vísaði erindinu til forsætisnefndar á fundi sínum þann 10. september sl.

Umræður.

Forsætisnefnd felur umbóta - og þróunarstjóra að vinna að samskiptareglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og notkun samfélagsmiðla. Óskað er eftir að fá kynningu fyrir 1. nóvember 2026.