Forsætisnefnd - 250. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - forseti
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - 1. varaforseti
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - 2. varaforseti
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Dagskrá bæjarstjórnarfundar 24. febrúar 2026.
I. Dagskrármál.
II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.
III. Kosningar.
Umræða um siðareglur kjörinna fulltrúa. Mál sett á dagskrá að beiðni forseta bæjarstjórnar.
Umræður
Bókun:
"Undirritaðar hafa orðið varar við opinbera umfjöllun og framgöngu kjörins fulltrúa þar sem notaður hefur verið titill bæjarfulltrúa í tengslum við umfjöllun um mál sem varða sveitarfélagið, auk birtingar efnis um starfsfólk bæjarins á opinberum vettvangi. Undirritaðar árétta að samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa ber þeim að sýna háttvísi, ábyrgð og virðingu í samskiptum og gæta þess að framganga þeirra grafi ekki undan trausti á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Undirritaðar telja mikilvægt að þessi sjónarmið séu höfð að leiðarljósi í störfum kjörinna fulltrúa og í allri opinberri umfjöllun um málefni sveitarfélagsins.
Leggja undirritaðar áherslu á að kjörnir fulltrúar beri sérstaka ábyrgð þegar þeir tjá sig opinberlega, ekki síst þegar fjallað er um einstaklinga í störfum sínum og að opinber umfjöllun skuli ávallt vera málefnaleg og í samræmi við siðareglur."
Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir