Forvarna- og frístundanefnd - 5. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - formaður
- Karen Júlía Júlíusdóttir - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Brynjar Örn Gunnarsson - varafulltrúi
- Arna Margrét Erlingsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Jón Sigfússon frá Rannsókn og Greiningur kynnir stöðu og þróun vímuefnaneyslu ungs fólks í Kópavogi. $line$Helena Magnúsdóttir forvarnafulltrúi Menntaskólans í Kópavogi kynnir forvarnaáætlun skólans.
Jón greindi frá þróun vímuefnaneyslu s.l. 3 ár. Forvarnastarf fyrir 13-15 ára börn (8.-10. bekkur) er að skila sér í jákvæðum niðurstöðum rannsókna. Vimuefnaneysla eykst þegar kemur í framhaldskólann. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
Helena kynnti forvarnaáætlun MK frá hausti 2011. Hún felst í auknu utanumhaldi á nýnemum, skóladansleikjum, námsefni í lífsleikni, og samstarf við foreldra m.a með kynningu á nýnemafundi og tengingu við foreldrafélagið. MK er einnig kominn í verkefnið, Heilsueflandi skóli á vegum Landlæknisembættisins. Gott samstarf er á milli bæjarins og menntaskólans um forvarnamál. Að sögn Jóns er það einsdæmi á landsvísu að svo virkt samstarf sé á milli fulltrúa sveitarfélagsins og framhaldsskólans.<o:p></o:p>
Forvarna- og frístundanefnd lýsir yfir ánægju sinni yfir þeirri faglegu forvarnavinnu sem MK hefur sett í gang. <o:p></o:p>
Erindisbréf forvarna- og frístundaráðs lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar erindisbréf forvarna- og frístundanefndar.
Frestað til næsta fundar.
Lagt fram til kynningar bæklingur frá verkefnahópi.
Verkefnastjóri á frístunda- og forvarnadeild greindi frá vinnu verkefnahóps. Nefndin bendir á að leiðir til tilkynningar á einelti mættu vera einfaldari. Mikilvægt er að tiltekin sé skýrari leið til að hafa samband vegna eineltismála. Til dæmis með því að skilgreina einn tiltekinn starfsmann bæjarins sem hefði umsjón með netfangi þar sem hægt væri að senda tilkynningar og athugasemdir.
Lögð fram til kynningar skýrsla um sumarnámnskeið 2011.$line$Lögð fram til kynningar starfsskýrsla vetrarstarfs félagsmiðstöðva 2010-2011.
Frestað til næsta fundar.
Rætt um starfsreglur ýmissa forvarnasjóða.
Frestað til næsta fundar.
Jón Júlíusson deildarstjóri íþróttadeildar kynnir niðurstöðu þeirrar vinnu sem þegar hefur farið fram vegna tómstundavagns.
Jón greindi frá breytingu sem þegar hefur verið gerð á leiðakerfi Strætó bs. innan Kópavogs til að mæta flutningsþörf á milli mannivrkja þar sem fer fram skipulagt tómstunda- og íþróttastarf. Forvarna- og frístundanefnd felur starfsmönnum menntasviðs að vinna áfram að tillögu og kostnaðaráætlun um annars vegar breytingu á núverandi leiðarkerfi Strætó bs. innan Kópavogs og hins vegar sérstökum frístundavagni í Kópavogi.
Lögð fram niðurstaða úr rannsókninni Ungt fólk 2011-Menntun, menning, íþróttir, tómstundir, hagir og líðan nemenda í 5.,6. og 7. bekk.
Lagt fram til kynningar.