Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kostnaður við rekstur tómstundavagns.

Málsnúmer: 1109270

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2618. fundur

Frá deildarstjóra íþróttamála, dags. 23/11, yfirlit yfir kostnað við rekstur tómstundavagns.

Lagt fram.

02

Íþróttaráð - 8. fundur

Deildarstjóri kynnti þá vinnu sem farið hefur fram varðandi rekstur á tómstundavagni og tengingu hans við Strætó bs.$line$

Íþróttaráð bókar eftirfarandi:"Þörfin fyrir tómstundavagn helgast ekki síst af dreifðum æfingatímum íþróttafélaganna milli íþróttahúsa. Best væri að skilgreina þjónustusvæði íþróttafélaganna með það í huga að iðkendur geti stundað íþróttir sem næst heimili sínu. Það gengur ekki til lengdar að barn þurfi í einni viku að sækja æfingar í Kórinn, Fífuna og Fagralund. Íþróttaráð hvetur því bæjarfulltrúa til að leiða þetta mál til lykta fyrir næsta æfingatímabil."

03

Forvarna- og frístundanefnd - 5. fundur

Jón Júlíusson deildarstjóri íþróttadeildar kynnir niðurstöðu þeirrar vinnu sem þegar hefur farið fram vegna tómstundavagns.

Jón greindi frá breytingu sem þegar hefur verið gerð á leiðakerfi Strætó bs. innan Kópavogs til að mæta flutningsþörf á milli mannivrkja þar sem fer fram skipulagt tómstunda- og íþróttastarf. Forvarna- og frístundanefnd felur starfsmönnum menntasviðs að vinna áfram að tillögu og kostnaðaráætlun um annars vegar breytingu á núverandi leiðarkerfi Strætó bs. innan Kópavogs og hins vegar sérstökum frístundavagni í Kópavogi.

04

Bæjarstjórn - 1043. fundur

Tillaga sem lögð var fram í bæjarstjórn 27/9 og frestað til næsta fundar:$line$""Bæjarstjóra verði falið að kanna hvað rekstur tómstundavagns kostar bæjarfélagið. Miða skal við daga (milli klukkan 15 og 20) fyrir börn upp að 10 ára aldri. $line$Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson, Margrét Björnsdóttir, Aðalsteinn Jónsson""$line$

Ármann Kr. Ólafsson kvaddi sér hljóðs og ræddi tillöguna. Fundarhlé var gert kl. 19:05. Fundi var síðan fram haldið kl. 19:30. Þá tók Guðríður Arnardóttir til máls og lagði til að tillögunni yrði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2012. Þá tók Aðalsteinn Jónsson til máls og ræddi tillöguna. Þá tók Hjálmar Hjálmarsson til máls, síðan Ármann Kr. Ólafsson, síðan aftur Hjálmar Hjálmarsson, þá Guðríður Arnardóttir. Kl. 19:55 var gert fundarhlé og fundi var síðan fram haldið kl. 19:58. Guðríður Arnardóttir tók til máls og lagði fram svofellda tillögu: Bæjarstórn vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar og <SPAN style=""COLOR: black""><FONT size=3><FONT face=""Times New Roman""> felur íþróttaráði og forvarna- og frístundaráði að fjalla um mögulegar útfærslur á því hvernig má styrkja þjónustu tómstundavagns í Kópavogi.</FONT></FONT></SPAN> Þá tók Alexander Arnarson til máls, síðan Pétur Ólafsson. Kl. 20:05 var gert fundarhlé og fundi síðan fram haldið kl. 20:08. Tillaga Guðríðar Arnardóttur borin undir atkvæði og samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

05

Bæjarstjórn - 1042. fundur

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Til máls tóku Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, Guðný Dóra Gestsdóttir, Guðríður Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson, Gunnar Ingi Birgisson, Rannveig Ásgeirsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Guðríður Arnardóttir, Margrét Björnsdóttir og&nbsp;Ármann Kr. Ólafsson og lagði fram eftirfarandi tillögu:</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;""Bæjarstjóra verði falið að kanna hvað rekstur tómstundavagns kostar bæjarfélagið. Miða skal við daga (milli klukkan 15 og 20) fyrir börn upp að 10 ára aldri. </EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson, Margrét Björnsdóttir, Aðalsteinn Jónsson""</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Þá tók Guðríður Arnardóttir til máls og lagði til að framlagðri tillögu yrði frestað til næsta fundar. Var tillaga Guðríðar Arnardóttur samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;