Framkvæmdaráð - 50. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Steingrímur Hauksson - embættismaður
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Þuríður Björk Sigurjónsdóttir
Dagskrá fundar
Frá skrifstofustjóra
Borist hefur umsókn um lóðina nr. 1 við Almannakór frá Ernu Guðmundsdóttur kr. 171277-4779 og Óla Geir Stefánssyni kt. 111177-5119. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lagt er til við bæjarstjórn að umsækjendum verði úthlutað lóðinni nr. 1 Almannakór.
Frá skrifstofustjóra
Borist hefur umsókn um lóðina Hlíðarendi 14 frá Jóni Braga Bergmann kt. 260468-3329 og Óttari Má Bergmann kt. 070170-4429. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lagt er til við bæjarstjórn að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Hlíðarenda 14.
Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Málið kynnt.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Frestað.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Framkvæmdaráð samþykkir með tveimur atkvæðum að boðið verði út í opnu útboði breikkun og breytingar á umferðaskipulagi Dalvegar milli Digranesvegar og Dalvegar 18 með fyrirvara um að samþykkt skipulag liggi fyrir. Guðríður greiðir atkvæði gegn.Guðríður Arnardóttir bókar:
Undirrituð bendir á að ekki hefur verið fjallað um umrædda skipulagsbreytingu í skipulagsnefnd og hvað þá bæjarstjórn. Breytingar á umferðarskipulagi Dalvegar hafa verið umdeildar og m.a. hefur lögreglan gert athugasemdir við málið. Ég tel því óeðlilegt að vinna frekar að málinu og hvað þá undirbúa útboð á verki sem ekki hefur fengið endanlega afgreiðslu bæjarstjórnar.

Guðríður Arnardóttir

Gunnar Birgisson og Ómar Stefánsson bóka: Undanfarið ár hefur verið unnið að breytingu á skipulagi á svæðinu í samvinnu við stofnanir og fyrirtækjum á svæðinu. Gunnar Birgisson og Ómar Stefánsson.

Ólafur Gunnarsson bókar:

Undirritaður telur ekki eðlilegt að samþykkja útboð á framkvæmd sem ekki hefur verið samþykkt á skipulagi. Ólafur Gunnarsson.

Gunnar Birgisson og Ómar Stefánsson bóka: Samþykki framkvæmdaráðs er með fyrirvara um samþykki skipulagsnefndar sem fundar í dag. Gunnar Birgisson og Ómar Stefánsson.

Frá deildarstjóra eignadeildar
Framkvæmdaráð heimilar að boðið verði út í opnu útboði bygging á sex íbúðum fyrir fatlaða einstalingar að Austurkór 3b.
Frá deildarstjóra eignadeildar
Þriðjudaginn 30. apríl 2013 kl. 11.00 voru opnuð tilboð í verkið - "Vatnsendaskóli Kópavogi lausar kennslustofur" skv. útboðsgögnum gerðum af umhverfissviði Kópavogs. Framkvæmdaráð samþykkir að tilboði frá Einari P og Kó verði tekið í lausar kennslustofur við Vatnsendaskóla.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Garðyrkjustjóri gerði grein fyrir stöðu ráðninga vegna sumarstarfa hjá Kópavogsbæ 2013. Garðyrkjustjóri mun gera frekar grein fyrir sumarstörfum 2013 á næsta fundi framkvæmdaráðs.
Byggingafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Byggingarfulltrúi gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við nýbyggingar. Byggingarfulltrúi mun gera nánar grein fyrir málinu á næsta fundi og leggja fram tillögur um aðgerðir vegna stöðu nýframkvæmda sem dregist hafa. Ómar Stefánsson bókar: Það þarf að benda eigendum Norðurturnins við Smáralind á að Kópavogsbær hefur það neyðarúrræði að óska eftir heimild til að taka turninn eignarnámi ef framkvæmdir við turninn hefjast ekki innan tíðar.
Frá garðyrkjustjóra
Garðyrkjustjóri gerði grein fyrir losun taðs frá hesthúsum í Kópavogi fyrr og nú.