Almannakór 1. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði
Málsnúmer: 1304505
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2721. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 24. febrúar, umsögn um erindi frá Ernu Guðmundsdóttur og Óla Geirs Stefánssonar, dags. 20. febrúar, þar sem óskað er eftir því að samþykkt verði að lóðarréttindum sé skilað vegna breyttra aðstæðna og innborgun vegna lóðagjalda verði endurgreidd. Lagt er til að bæjarráð samþykki erindið.
Bæjarráð samþykkir að byggingarrétti á lóðinni Almannakór 1 verði skilað.
02
Bæjarstjórn - 1077. fundur
Á fundi framkvæmdaráðs 7. maí 2013 var til umfjöllunar umsókn Ernu Guðmundsdóttur kt. 171277-4779 og Óla Geirs Stefánssonar kt. 111177-5119 um lóðina nr. 1 við Almannakór. $line$Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Almannakór 1.$line$
Bæjarstjórn samþykkir tillögu framkvæmdaráðs einróma.
03
Framkvæmdaráð - 50. fundur
Frá skrifstofustjóra
Borist hefur umsókn um lóðina nr. 1 við Almannakór frá Ernu Guðmundsdóttur kr. 171277-4779 og Óla Geir Stefánssyni kt. 111177-5119. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lagt er til við bæjarstjórn að umsækjendum verði úthlutað lóðinni nr. 1 Almannakór.