Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Framkvæmdaráð - 20. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðríður Eldey Arnardóttir - formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Guðrún Pálsdóttir - bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson

Ritari

  • Sigurjón Ingvason

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Kaffitería í Listasafni Kópavogs. Útboð.

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar. Niðurstaða útboðs. Engin tilboð bárust.

Framkvæmdaráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að auglýsa eftir samstarfsaðila. Ármann kr. Ólafsson leggur fram eftirfarandi bókun:"Ef <SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; COLOR: black; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA">ekki finnst rekstraraðili að kaffistofunni verður að loka henni. Á meðan sífellt þarf að hækka matargjald í skólum og leikskólum er ekki hægt að réttlæta það að eyða skattfé Kópavogsbúa í niðurgreiðslu á kaffihúsi. Auk þess eru tvö kaffihús í næsta nágrenni.</SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; COLOR: black; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA"></SPAN>Ármann Kr. Ólafsson"

Almenn mál

02

Útboð matur Bæjarskrifstofur.

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar. Þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kl. 11:00 voru opnuð tilboð í verkið " Framleiðsla á mat fyrir bæjaskrifstofur Kópavogs 2011 til 2012".$line$Útboðið var opið og bárust eftirfarandi tilboð:$line$$line$1. Furðufiskar ehf. 11.990.000 -$line$2. H og K veitinga ehf. 12.550.000 -$line$$line$Kostnaðaráætlun 13.200.000 -$line$Lagt er til að leitað verði samninga við lægst bjóðanda Furðufiska ehf.$line$

Samþykkt.

Almenn mál

03

Endurskoðun ársreikninga, útboð

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar. Fundargerð opnunarfundar.

Lagt fram.

Almenn mál

04

Urðarhvarf 8. Óskað eftir samþykki fyrir framsali.

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Lagt er til að framsal verði heimilað.

Samþykkt.

Almenn mál

05

Lækjarbotnaland 17. Óskað eftir heimild til framsals

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Lagt er til að framsal verði heimilað.

Samþykkt, enda sé tryggt að forkaupsréttur bæjarins haldist.

Almenn mál

06

Kópavogsbraut 3. Krafa vegna lóðarskerðingar.

Guðrún Pálsdóttir mætti til fundar kl. 8:20.

Frá Fasteignum Kópavogsbrautar ehf. Greiðsluáskorun dags. 2. desember 2011.

Skrifstofustjóra umhverfissviðs falið að svara erindinu.

Almenn mál

07

Framkvæmdir 2011, yfirlit

Frá umhverfissviði. Yfirlit yfir ýmsar framkvæmdir.

Lagt fram.

Almenn mál

08

Snjómokstur á stígum.

Erindi frá íbúa vegna snjómokstur á stígum. Lögð fram gögn frá umhverfissviði varðandi skipulag snjómoksturs af stígum.

Framkvæmdaráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að endurskoða tímasetningu moksturs aðalstíga með tilliti til þess að bæta þjónustu við þá sem hjóla í vinnuna.

Almenn mál

09

Rekstur áhaldahúss

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Yfirlit um rekstur áhaldahúss.

Lagt fram.

Almenn mál

10

Kórinn. Hugmynd um nýtingu fyrir framhaldsskóla.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Teikningar sem sýna hugmyndir um nýtingu Kórsins fyrir framhaldsskóla.

Lagt fram.

Almenn mál

11

Kópavogsbrún 1. Umsókn um lóða

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Hörðuból ehf. verði úthlutað lóðinni Kópavogsbrún 1.

Almenn mál

12

Austurkór 10. Umsókn um lóð

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Ragnari Kristni Ingasyni og Gróu Hlín Jónsdóttur verði úthlutað lóðinni Austurkór 10.

Almenn mál

13

Austurkór 43, 45, 47 og 47A. Lóðaumsókn

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að GT Hreinsun ehf. verði úthlutað lóðunum Austurkór 43, 45, 47 og 47a.

Önnur mál

14

Heimsendi 1. Ósk um afnot af hesthúsi til kennslu einhverfra.

Frá menntasviði. Ósk um afnot af hluta hesthúss.

Samþykkt.