Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Framkvæmdaráð - 41. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson - embættismaður
  • Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Þuríður Björk Sigurjónsdóttir - skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - byggingarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri

Ritari

  • Þuríður Björk Sigurjónsdóttir

Hjálmar Hjálmarsson mætti til fundarins kl. 08.16
Guðríður Arnardóttir mætti til fundarins kl. 08.19.
Ármann Kr. Ólafsson mætti til fundarins kl. 08.24.

Dagskrá fundar

01

Vinnuskóli 2012

Friðrik Baldursson og Sigurður Grétar Ólafsson sátu fundinn undir þessum lið.

Frá garðyrkjustjóra

Lögð fram starfsskýrsla Vinnuskólans og Skólagarða Kópavogs 2012. Skýrslan kynnt.

02

Samningur um atvinnuátak 2009

Friðrik Baldursson sat fundinn undir þessum lið.

Frá garðyrkjustjóra

Lögð fram skýrsla um atvinnuátak á vegum Skógræktarfélags Kópavogs, Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Íslands sumarið 2012. Skýrslan kynnt.

03

Félagslegar leiguíbúðir. Innkaup.

Gunnar Már Karlsson deildarstjóri eignadeildar sat fundinn undir þessum lið.

Frá fjármálastjóra og deildarstjóra fasteigna

Lagt fram bréf deildarstjóra fasteigna dags. 13. nóvember 2012. Í bréfinu kemur fram að enn sé ekki fram komin reglugerð í samræmi við breytingar á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál, sem afgreidd voru á síðasta þingi. Vegna þessa hefur lánanefnd Íbúðalánasjóðs ekki verið kölluð saman. Einnig kemur fram í bréfinu, að óvíst sé hvaða áhrif væntanleg reglugerð muni hafa á lánveitingar til þeirra íbúða sem Húsnæðisnefnd Kópavogsbæjar hefur keypt að undanförnu og eru óafgreiddar hjá Íbúðalánasjóði.

04

Leikskóli Austurkór 1, stjórnsýslukæra vegna útboðs Kópavogsbæjar -

Frá skrifstofustjóra

Kærunefnd útboðsmála hefur borist kæra frá Sérverk ehf. vegna vals Kópavogsbæjar á samningaaðila og samþykki á tilboði Eyktar ehf., sbr. bréf dags. 7. nóvember 2012.Lagt fram.

05

Álmakór 23. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Evu Hlín Dereksdóttur kt. 070777-5849 og Ágúst Torfa Haukssyni kt. 310574-4499 verði úthlutað lóðinni Álmakór 23.

06

Álmakór 17a og 17b, framsal lóðaréttinda.

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Kristjáni G. Leifssyni kt. 230873-5699 verði heimilað að framselja lóðarréttindi Álmakór 17a til Ingvars Hafsteins S. Hreinssonar kt. 090776-4879.Guðríður Arnardóttir sat hjá við þessa atkvæðagreiðslu. SAmþykkt með tveimur atkvæðum.

07

Þrúðsalir 6. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Frá skrifstofustjóra

Fylgigögn hafa ekki borist, fellur út af dagskrá.

08

Austurkór 105. Umsókn byggingarfélagsins Boga ehf. um lóð

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Byggingarfélaginu Boga ehf. kt. 600100-2620 verði úthlutað lóðinni Austurkór 105.

09

Austurkór 107. Umsókn byggingarfélagsins Boga ehf. um lóð

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Byggingarfélaginu Boga ehf. kt. 600100-2620 verði úthlutað lóðinni Austurkór 107.

10

Landsendi 29. Umsókn um lóð undir hesthús

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Pétri Bergþór Arasyni kt. 270770-4879 verði úthlutað lóðinni Landsendi 29.

11

Austurkór, 55, 57, 59 og 61. Umsókn Sóltúns ehf. um lóð.

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Sóltúni ehf. kt. 610808-0690 verði úthlutað lóðinni Austurkór 55, 57, 59 og 61.

12

Austurkór 43, 45, 47, 47a. Umsókn um lóðir afturkölluð.

Frá skrifstofustjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að orðið verði við beiðni Sóltúns ehf. kt. 610808-0690 um að draga til baka umsókn um lóðirnar Austurkór 43, 45, 47 og 47a. Sbr. umfjöllun um umsókn um lóðina Austurkór 55, 57, 59 og 61.

13

Byggingareftirlit, starfsmannamál

Frá sviðsstjóra

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að sviðsstjóra umhverfissviðs verði heimilað að auglýsa eftir starfsmanni við byggingareftirlit.

14

Fyrirspurn bæjarfulltrúa

Fyrirspurn frá Ómari Stefánssyni

Ómar Stefánsson óskar eftir að á næsta fundi framkvæmdaráðs verði lagður fram listi yfir framkvæmdir og stöðu verka á íbúðum og atvinnuhúsnæði.

15

gatnagerðargjöld

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Almennar umræður um gatnagerðargjöld og breytingar á deiliskipulagi.

16

Fyrirspurn bæjarfulltrúa

Frá Hjálmari Hjálmarssyni

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><FONT face=Consolas>Hver er staða framkvæmda við breytingar á hraðahindrunum á helstu leiðum Strætó, sem ákveðnar voru á síðasta ári?</FONT></P>