Félagslegar leiguíbúðir. Innkaup.
Málsnúmer: 1103090
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2685. fundur
Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóra verði falið að kaupa íbúðir árið 2013 fyrir um kr. 70 milljónir, óháð lánveitingum íbúðarlánasjóðs. Bæjarstjóra falið að senda bréf til velferðarráðherra vegna dráttar á setningu reglugerðar um lán til kaupa á félagslegu húsnæði.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu framkvæmaráðs og felur bæjarstjóra að senda bréf til velferðarráðherra vegna dráttar á setningu reglugerðar um lán til kaupa á félagslegu húsnæði.
02
Framkvæmdaráð - 49. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármálastjóra
Lagt fram bréf sviðsstjóra umhverfissvið og fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 22. apríl 2013. Erindið varðar kaup Kópavogsbæjar á félagslegum leiguíbúðum. Reglugerð um skilyrði lána til leiguíbúða hefur ekki enn verið sett. Í fjárhagsáætlun 2013 er gert ráð fyrir kr. 70 milljónum til eignakaupa húsnæðisnefndar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóra verði falið að kaupa íbúðir árið 2013 fyrir um kr. 70 milljónir, óháð lánveitingum íbúðarlánasjóðs. Bæjarstjóra falið að senda bréf til velferðarráðherra vegna dráttar á setningu reglugerðar um lán til kaupa á félagslegu húsnæði.
03
Framkvæmdaráð - 41. fundur
Frá fjármálastjóra og deildarstjóra fasteigna
Lagt fram bréf deildarstjóra fasteigna dags. 13. nóvember 2012. Í bréfinu kemur fram að enn sé ekki fram komin reglugerð í samræmi við breytingar á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál, sem afgreidd voru á síðasta þingi. Vegna þessa hefur lánanefnd Íbúðalánasjóðs ekki verið kölluð saman. Einnig kemur fram í bréfinu, að óvíst sé hvaða áhrif væntanleg reglugerð muni hafa á lánveitingar til þeirra íbúða sem Húsnæðisnefnd Kópavogsbæjar hefur keypt að undanförnu og eru óafgreiddar hjá Íbúðalánasjóði.
04
Framkvæmdaráð - 37. fundur
Frá deildastjór eignadeildar.
Endanlegt verð á íbúð í Fannborg 3. Lagt fram til kynningar. Yfirlit yfir tilboð í kaup á félagslegum íbúðum lagt fram til kynningar.
05
Framkvæmdaráð - 31. fundur
Sviðsstjóra umhverfissvið falið að kaupa íbúðir í félagslega kerfið sem rúmast innan fjárhagsáætlunar. Sviðsstjóri gerir framkvæmdaráði grein fyrir málunum.
06
Framkvæmdaráð - 19. fundur
Frá deildarstjóra eignadeildar. Tilboð um kaup á þremur íbúðum.
Samþykkt.
07
Framkvæmdaráð - 18. fundur
Lögð fram tilboð sem opnuð voru 19. október 2011 í félagslegar íbúðir.
Framkvæmdaráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að gera tillögu um kaup á allt að 4 íbúðum.
08
Framkvæmdaráð - 9. fundur
Umhverfissvið óskar eftir leiðbeiningum um innkaupaferli fyrir leiguíbúðir.
<DIV><DIV>Rætt var um leiðir í innkaupum. Sviðsstjóra falið að kanna markaðinn og kaupa íbúðir í samræmi við núverandi þörf.</DIV></DIV>