Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Framkvæmdaráð - 23. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðríður Eldey Arnardóttir - formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Guðrún Pálsdóttir - bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson - embættismaður
  • Ómar Stefánsson - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Sigurjón Ingvason

Dagskrá fundar

01

Landsendi 25. Ósk um rétthafabreytingu.

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um erindi þar sem óskað er eftir aðilaskiptum að lóðarleigusamningi. Lagt er til að erindið verði samþykkt.

Samþykkt.

Ólafur Þór Gunnarsson mætir til fundar kl. 9:15.

02

Sumarstörf 2012

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Tillaga að fyrirkomulagi sumarstarfa 2012.

Almennar vinnureglur samþykktar með þeim breytingum á 4. lið að ráðningartími verði 4-8 vikur og á 5. liðað 17 ára verði boðin að lágmarki 4 vikna vinna. Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.

03

Vinnuskóli 2012

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Tillaga að fyrirkomulagi vinnuskóla 2012.

Frestað. Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.

04

Skólagarðar 2012

Frá garðyrkjustjóra. Tillaga að fyrirkomulagi og gjaldtöku 2012.

Samþykkt. Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.

05

Garðlönd 2012

Frá garðyrkjustjóra. Tillaga að fyrirkomulagi og gjaldtöku 2012.

Samþykkt með þeirri breytingu að verð fyrir 25 fermetra verði kr. 4.000,- og fyrir 50 fermetra kr. 8.000,- Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.

06

Rammasamningur Ríkiskaupa

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar. Umsögn um erindi Ríkiskaupa varðandi aðild að rammasamningum 2012.

Aðild að rammasamningi samþykkt.

07

Útboð vátrygginga sveitarfélagsins

Frá bæjarritara. Óskað eftir heimild til að hefja undirbúning að útboði á tryggingum.

Samþykkt.

08

Útboð á húsnæði undir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Verölum

Frá deildarstjóra íþróttadeildar. Óskað eftir heimild til að bjóða út í almennu útboði húsnæðisaðstöðu fyrir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum.

Samþykkt að vinna útboðsgögn í samræmi við sátt Samkeppniseftirlitsins.

09

Breytingar á viðhalds- og þjónustusamningum (þéttbýlissamningar) 2011

Tilkynning frá Orkuveitu um að slökkt verði á lýsingu á Vatnsendavegi þar sem Vegagerðin hefur hætt að greiða fyrir lýsinguna.

Lýsing á Vatnsendavegi er alfarið á ábyrgð Vegagerðarinnar samkvæmt samkomulagi þar um. Einhliða ákvörðun um að slökkva á lýsingu á Vatnsendavegi er alfarið á hennar ábyrgð. Framkvæmdaráð lýsir furðu sinni á vinnubrögðum Vegagerðarinnar og mótmælir þessari ákvörðun hennar.