Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Líkamsræktarstöðvar, útboð á húsnæði í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum

Málsnúmer: 1201366

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1096. fundur

Miðvikudaginn 26. mars 2014 voru opnuð tilboð í "Útleiga á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi" skv. útboðsgögnum dags. mars 2014. Útboðið var opið. Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði útboðið. Tvö tilboð bárust og reyndist tilboð Gym Heilsu ehf. ógilt við yfirferð. Tilboð Lauga ehf. uppfyllir ekki kröfur útboðsgagna, um að með tilboði skuli leggja fram ársreikninga félagsins fyrir árin 2012 og 2013 yfirfarna og endurskoðaða. Framkvæmdaráð samþykkir tillögu umhverfissviðs um að hafna tilboði Lauga ehf., en felur bæjarlögmanni að leita heimildar Samkeppniseftirlits að fresta útboði á líkamsrækt við Sundlaugar Kópavogs þar til bærinn hefur markað sér lýðheilsustefnu. Næsta útboð taki svo mið af lýðheilsustefnu bæjarins svo bæjarbúar geti notið líkamsræktar á sem hagstæðasta verði. $line$Ólafur Þór Gunnarsson bókar: "Tek undir samþykkt framkvæmdaráðs."$line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu framkvæmdaráðs.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma.

02

Bæjarráð - 2730. fundur

Miðvikudaginn 26. mars 2014 voru opnuð tilboð í "Útleiga á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi" skv. útboðsgögnum dags. mars 2014. Útboðið var opið. Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði útboðið. Tvö tilboð bárust og reyndist tilboð Gym Heilsu ehf. ógilt við yfirferð. Tilboð Lauga ehf. uppfyllir ekki kröfur útboðsgagna, um að með tilboði skuli leggja fram ársreikninga félagsins fyrir árin 2012 og 2013 yfirfarna og endurskoðaða. Framkvæmdaráð samþykkir tillögu umhverfissviðs um að hafna tilboði Lauga ehf., en felur bæjarlögmanni að leita heimildar Samkeppniseftirlits að fresta útboði á líkamsrækt við Sundlaugar Kópavogs þar til bærinn hefur markað sér lýðheilsustefnu. Næsta útboð taki svo mið af lýðheilsustefnu bæjarins svo bæjarbúar geti notið líkamsræktar á sem hagstæðasta verði. $line$Ólafur Þór Gunnarsson bókar: "Tek undir samþykkt framkvæmdaráðs."$line$

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu framkvæmdaráðs.Fundarhlé kl. 8:26. Fundi fram haldið kl. 8:35Fundarhlé kl. 8:36. Fundi fram haldið kl. 8:37Fyrirspurn Guðríðar, Ólafs og Hjálmars:"<SPAN style="WHITE-SPACE: normal; WORD-SPACING: 0px; TEXT-TRANSFORM: none; FLOAT: none; COLOR: rgb(0,0,0); FONT: 13px Tahoma; DISPLAY: inline !important; LETTER-SPACING: normal; TEXT-INDENT: 0px; -webkit-text-stroke-width: 0px">Formgallar á innskiluðum tilboðum í rekstur líkamsræktaraðstöðu sundlauganna eru augljósir og því er eðilegt að spyrja hvers vegna það tók fimm vikur að úrskurða um að bæði tilboðin sem bárust uppfylltu ekki skilyrði útboðslýsingar. Skriflegt svar óskast.</SPAN>"Bókun Rannveigar, Ármanns og Ómars:"<SPAN style="FONT-SIZE: 13px; FONT-VARIANT: normal; WHITE-SPACE: normal; WORD-SPACING: 0px; TEXT-TRANSFORM: none; FLOAT: none; FONT-WEIGHT: normal; COLOR: rgb(0,0,0); FONT-STYLE: normal; LINE-HEIGHT: normal" 0px? -webkit-text-stroke-width: 0px; TEXT-INDENT: normal; LETTER-SPACING: !important; inline DISPLAY: sans-serif; Arial, Helvetica, UI?, Segoe>Sjálfsagt að svara fyrirspurninni skriflega en málið er unnið innan tilskilinna tímamarka.</SPAN>"

03

Framkvæmdaráð - 63. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar

Miðvikudaginn 26. mars 2014 voru opnuð tilboð í "Útleiga á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi" skv. útboðsgögnum dags. mars 2014. Útboðið var opið. Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði útboðið. Tvö tilboð bárust og reyndist tilboð Gym Heilsu ehf. ógilt við yfirferð. Tilboð Lauga ehf. uppfyllir ekki kröfur útboðsgagna, um að með tilboði skuli leggja fram ársreikninga félagsins fyrir árin 2012 og 2013 yfirfarna og endurskoðaða. Framkvæmdaráð samþykkir tillögu umhverfissviðs um að hafna tilboði Lauga ehf., en felur bæjarlögmanni að leita heimildar Samkeppniseftirlits að fresta útboði á líkamsrækt við Sundlaugar Kópavogs þar til bærinn hefur markað sér lýðheilsustefnu. Næsta útboð taki svo mið af lýðheilsustefnu bæjarins svo bæjarbúar geti notið líkamsræktar á sem hagstæðasta verði. Ólafur Þór Gunnarsson bókar: "Tek undir samþykkt framkvæmdaráðs."

04

Bæjarráð - 2729. fundur

Lögð fram til kynningar niðurstaða umhverfissviðs við yfirferð tilboða í útleigu á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar Kópavogs. Tvö tilboð bárust í útboðinu og var tilboð Gym heilsu hf. metið ógilt við yfirferð. Tilboð Lauga ehf. uppfyllir ekki kröfur útboðsgagna, um að með tilboði skuli leggja fram ársreikninga félagsins fyrir 2012 og 2013 yfirfarna og endurskoðaða af endurskoðanda. Deildarstjóri framkvæmdadeildar leggur til að tilboði Lauga ehf. verði hafnað og að útleiga á líkamsræktarstöðvum við sundlaugar í Kópavogi verði boðin út að nýju. Tillagan verður lögð fyrir framkvæmdaráð á næsta fundi þess.

Lagt fram.Sviðsstjóri umhverfissviðs, deildarstjóri framkvæmdadeildar og bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.

05

Bæjarráð - 2727. fundur

Frá Íslögum ehf., dags. 2. apríl, athugasemdir varðandi útboð vegna útleigu á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

06

Framkvæmdaráð - 59. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.

Lagt fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 16. desember 2013, þar sem þess er óskað að heimilt verði að bjóða út húsnæði undir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum. Framkvæmdaráð heimilar útboðið.

07

Framkvæmdaráð - 28. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar. Opnuð tilboð í útleigu á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi. Engin tilboð bárust.

Málinu er frestað. Óskað eftir umsögn frá sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs.

08

Framkvæmdaráð - 23. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar. Óskað eftir heimild til að bjóða út í almennu útboði húsnæðisaðstöðu fyrir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum.

Samþykkt að vinna útboðsgögn í samræmi við sátt Samkeppniseftirlitsins.