Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3267. fundur

Fundarboð

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Kópavogshöfn - öldubrjótur

2609094

Frá umhverfissviði, dags. 03.09.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja framkvæmdir við öldubrjót í samræmi við þá útfærslu og forsendur sem fram koma í meðfylgjandi greinargerð. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta aðstöðu á hafnarsvæðinu, auka öryggi og tryggja notkunarmöguleika hafnarinnar og hafnarsvæðis. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 17.09.2026. Nú lagt fram að nýju ásamt umsögn frá Vegagerðinni, dags. 06.10.2026.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg

26071075

Frá bæjarstjóra, dags. 05.06.2026, lögð fram umsögn varðandi tillögu bæjarfulltrúa Miðflokks um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Erindi vegna kjarasamninga

26091874

Á fundi bæjarráðs þann 17.09.2026 var lagt fram erindi frá VR, Landssambandi íslenskra verslunarmanna og Rafiðnaðarsambandinu, dags. 14. september 2026, þar sem óskað eftir upplýsingum um hvað Kópavogsbær væri tilbúinn að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar bæjarstjóra. Nú lögð fram umsögn bæjarstjóra, dags. 06.10.2026.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Áskorun varðandi þjóðarsátt um verðstöðugleika

26092130

Lagt fram svar bæjarstóra við áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16.09.2026.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um kostnaðarmat vegna hækkunar systinaafsláttar

26062856

Frá menntasviði og áhættu og fjárstýringu, dags. 05.10.2026, lagt fram svar við fyrirspurn um kostnaðarmat vegna hækkunar systkynaafsáttar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Jólavogur - kynning

26092034

Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála kynnir nýja dagskrárröð á aðventunni undir heitinu Jólavogur.

Ýmis erindi

07

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2027 til samþykktar

2610657

Frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, dags. 02.10.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar gjaldskrá fyrir árið 2027.

Ýmis erindi

08

Bókun 148. fundar svæðisskipulagsnefndar. Starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2027

26093698

Frá SSH, dags. 30.09.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs tillaga að fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2027 og starfsáætlun nefndarinnar haustið 2026 og vorið 2027.

Ýmis erindi

09

Stjórnsýsluréttur fyrir kjörna fulltrúa

2610575

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðadi fræðslu um stjórnýslurétt fyrir kjörna fulltrúa sem fram fer þriðjudagnn 13. október.

Fundargerðir nefnda

10

Skipulags- og umhverfisráð - 36. fundur frá 05.10.2026

2609038F

Fundargerð í átta liðum.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerð 48. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 28.09.26

2610224

Fundargerð 48. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 28.09.26.