Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Fundarboð

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Dagskrá fundar

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

01

Bæjarhátíð Kópavogs 2027

26092035

Tillaga meirihlutans um að veita styrk til bæjarhátíðar í Kópavogi sumarið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

02

Beiðni um framlag til menningarhúsanna árið 2027

2610548

Óskað er eftir framlagi til menningarhúsanna í Kópavogi vegna sameiginlegra viðburða og annarra verkefna 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

03

Styrkumsókn vegna Púlsins 2027

2610506

Molinn og Salurinn óska eftir styrk að upphæð kr. 1.400.000 til að styðja við grasrót tónlistar og veita nýjum röddum aðgang að faglegu tónleikaumhverfi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

04

Brekkusöngur í Salahverfi. Beiðni um styrk-samstarf

26092053

Einstaklingar óska eftir 500.000 kr. styrk vegna útitónleikahalds í Kópavogi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

05

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2610232

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð kr. 500.000 vegna sýningar, gjörnings og veggverks í samvinnu við Y-gallerý.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

06

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2608325

Samkór Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð kr. 500.000 vegna starfsemi kórsins árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

07

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2609001

Leikhópurinn Lotta óskar eftir styrk að upphæð 150.000 kr. til að sýna fjölskyldusöngleik á Rútstúni sumarið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

08

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26093240

Hjólastrætó Kársness óskar eftir styrk að upphæð kr. 44.995 til að festa kaup á hátalara fyrir hjólaferð foreldra og barna á föstudagsmorgnum.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

09

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26093458

Tækni Framtíðar ehf. sækir um styrk að upphæð kr. 600.000 til að bjóða upp á sex ókeypis smiðjur á aðalsafni og Lindasafni um gervigreind og skapandi skrif.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

10

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2610076

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 160.000 kr. til að halda PEERS námskeið í félagsfærni fyrir börn og fullorðna.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

11

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26092576

Prinsessur sækja um styrk að upphæð 305.000 til að halda fjórar fjöltyngdar sögustundir og föndurviðburði í Bókasafni Kópavogs með sérstakri áherslu á fjölskyldur flóttafólks og innflytjenda.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

12

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26092577

Prinsessur sækja um styrk að upphæð 580.000 kr. til að standa straum að árlegri ókeypis páskaeggjaleit fyrir 3-9 ára í Guðmundarlundi páskana 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

13

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2610341

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 1.000.000 til að hanna og framleiða fatalínu sem verður lituð með jurtum úr Kópavogi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

14

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2610662

Bílskúrsbandið Hekla og mæðraveldið óskar eftir styrk að upphæð 575.000 króna til að halda tónleika í Salarlaug þar sem flutt verður ábreiðutónlist með femínískum boðskap.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

15

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

2610601

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 300.000 kr. til að semja nýtt verk fyrir Skólakór Kársness - að beiðni kórsins - sem flytja á haustið 2027 í tilefni af 70 ára afmæli skólans.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

16

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102195

Leikfélag Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð 1.800.000 kr. vegna 70 ára afmælissýningarinnar Við byggjum bæ. Sýningin er byggð á sögum, sérkennum og hversdagslífi Kópavogs.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

17

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102183

Tveir einstaklingar óska eftir styrk að upphæð 1.500.000 kr. til að halda hádegistónleika í fjórum kirkjum Kópavogs. Tónleikarnir eru aðallega ætlaðir eldri borgurum sem búa ekki á dvalarheimilum.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

18

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26101107

Beck Liborius ehf. sækir um styrk að upphæð 600.000 kr. til að halda námskeið á sviði kikmyndagerðar undir heitinu Bíóklúbbur barnanna sumarið 2027. Námskeiðinu er ætlað að virkja áhuga barna á faginu. Styrknum er ætlað að lækka kostnað þátttakenda.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

19

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102218

Leikhópurinn Skellibjalla sækir um styrk að upphæð kr. 1.450.000 til að setja upp nýja leikgerð í Salnum undir heitinu Jólaævintýri Skröggs. Fyrirhugaðar eru 16 sýningar í desember 2026.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

20

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102205

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. fyrir sýningu á samtímadansverkinu BAND sem unnið er í samstarfi við nýja íslenska ballettflokkinn Ballet Axis.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

21

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102778

Hljómsveitin Dr. Gunni óskar eftir styrk að upphæð 250.000 kr. til að standa straum að hljómplötuútgáfu og tónleikum í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar á næsta ári.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

22

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102924

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. til að afla heimilda og skrá sögu Kársness. Verkefnið er óhagnaðardrifið og niðurstaðan opin öllum á vefnum Götusögur.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

23

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102907

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 1.300.000 kr. fyrir dans- og tónlistarverkefnið Dansandi krakkastappa sem felur í sér gjaldfrjálsar danssmiðjur og mögulega lokasýningu.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

24

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102761

Karlakór Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð 1.250.000 kr. til kaupa á kórpöllum sem nýst geta öllu kórastarfi bæjarfélagsins með það að markmiði að auðga tónlistarlíf bæjarins.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

25

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102712

Karlakór Kópavogs sækir um styrk að upphæð 650.000 kr. til að styðja við menningar- og félagsstarf kórsins á starfsárinu 2026-2027. Kórinn hefur það að markmiði að efla söngmenningu, varðveita íslenskar sönghefðir og stuðla að virku og fjölbreyttu félagsstarfi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

26

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102697

Forvitnissakir, félagasamtök óska eftir styrk að upphæð 800.000 kr. til að framkvæma þátttökusviðsverk og röð gjörninga og viðburða fyrir börn á aldrinum 8-12 ára í verslunarmiðstöðinni Smáralind veturinn 2027-28.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

27

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102628

Sarabel ehf. sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til að sýna nýtt, íslenskt jólaleikrit fyrir og með börnum á leikskólaaldri í leikskólum og bókasöfnum.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

28

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102533

Kvennakór Bliku óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til áframhaldandi starfsemi á afmælisárinu 2027, en meðal skipulagðra viðburða næsta árs eru tónleikar með þemanu Konur, æfingaferð og tónleikar með öðrum kór.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

29

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102386

Ópus Reykjavík, félagasamtök óska eftir styrk að upphæð 550.000 kr. til að standa fyrir listviðburði sem selt verður inn á í Litla Saunahúsinu á Kársnesi 7. og 8. desember 2026 m.a. með það að markmiði að færa samtímalist út fyrir hefðbundin menningarrými.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

30

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102373

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til að halda útgáfutónleika í Salnum í apríl 2027 í tilefni af útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Nú eru góð ráð dýr.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

31

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102956

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 950.000 kr. vegna verkefnisins Til útláns - bókverk í umferð, sem unnið er í samstarfi við Bókasafn Kópavogs frá janúar til desember 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

32

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102955

Dansgarðurinn og FORWARD Youth Company sækir um styrk að upphæð 439.354 kr. til að standa fyrir ókeypis dansviðburði utandyra í Hamraborg í júní 2027 þar sem sýndar verða styttri útgáfur tveggja samtímadansverka sem frumsýnd verða í Tjarnarbíói í maí 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

33

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102953

Mossley sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa fyrir tónleikaröðinni Kársnesið rokkar sem ætlað er ungum og upprennandi hljómsveitum í Kópavogi. Tónleikaröðin stendur frá nóvember 2026 til maí 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

34

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102960

Einstaklingar óska eftir styrk að upphæð 600.000 kr. vegna Brekkusöngs 2027, sem fram fer í brekkunni á milli Roðasala og Skjólsala.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

35

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102969

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 433.000 kr. vegna útgáfutónleika í Salnum þann 3. desember 2026.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

36

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102970

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 200.000 kr. til að halda Íslandsmeistaramót í Kópavogi við að fleyta kerlingar á sumardaginn fyrsta árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

37

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103015

Pera Óperukollektíf, félag sækir um styrk að upphæð 2.000.000 kr. til að standa fyrir fjölbreyttum söngviðburðum í bænum; óperugöngum og/eða barnaóperu í skólum; óperusýningu og/eða spennandi söngtónleikum í Salnum; pop-up viðburðum í hverfum og/eða tónleikum í heimahúsum.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

38

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103014

Sólfinna óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa fyrir jazztónleikum ásamt kvartett sínum á sumarhátíð bæjarins.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

39

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103013

Kór Lindakirkju óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa fyrir tónleikunum Kópavogur í gospel í Lindakirkju vorið 2027. Flutt verða lög þekktra tónlistarmanna úr Kópavogi í nýrri útsetningu.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

40

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103012

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 997.694 kr. til að heimsækja leikskóla í Kópavogi og flytja þar nýja barnatónlist fyrir nemendur og kennara.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

41

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103011

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til að fullgera handrit að barnabók, prófa það með barnahóp og móta fyrstu hugmyndir að söguleið um bæinn.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

42

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103010

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 940.000 kr. til að standa fyrir fjórum fjölþjóðlegum viðburðum í Gerðarsafni þar sem myndlist, silkiþrykk á textíl og matarupplifun mætast með þátttöku ólíkra listamanna.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

43

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103009

Leikhópurinn BingoBango sf. óskar eftir styrk að upphæð 2.600.000 kr. til að setja upp barnaleiksýninguna Innblástur í Kópavogi. Sýningin er að mestu án tals og hlaut 4 tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2026.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

44

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103007

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 1.000.000 kr. til að standa fyrir afmælisfögnuði í Salnum og Krónikunni í tilefni af fertugsafmæli kvikmyndarinnar Stellu í orlofi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

45

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103006

Tveir einstaklingar óska eftir styrk að upphæð 980.000 kr. til að standa fyrir sjö tónleikum á hjúkrunarheimilum og safnaðarheimili bæjarfélagsins þar sem flutt verða gömul sönglög í bland við þekkt dægurlög.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

46

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103005

Tveir einstaklingar óska eftir styrk að upphæð 1.200.000 kr. til að vinna að myndlistarverkefninu FÖR, þar sem minningum Kópavogsbúa úr íþróttahúsum bæjarins verður safnað saman og unnin úr þeim listaverk sem sýnd verða á ókeypis farandsýningu á þremur stöðum í Kópavogi haustið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

47

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103004

Kraðak óskar eftir styrk að upphæð 2.286.500 kr. til að standa fyrir fjórum hátíðlegum samverustundum fyrir börn og fjölskyldur á aðventunni í Guðmundarlundi undir heitinu Jólalundur þar sem náttúra, menning og íslenskar jólahefðir mætast. Óskað er eftir þriggja ára samstarfssamningi fyrir árin 2027-2029 til að tryggja samfellu og uppbyggingu verkefnisins, en til vara styrk fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

48

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103001

Virago sf. óskar eftir styrk að upphæð 745.000 kr. til að halda gjaldfrjálst Tangókvöld í Kópavogi í samstarfi við Tangófélagið, fimm manna hljómsveit og DJ. Tangókvöldið gæti orðið hluti af Bæjarhátíð Kópavogs.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

49

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26103000

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 400.000 kr. til að setja upp hljóðinnsetninguna Tif á Kópavogshátíðinni 2027. Verkið myndar hljóðræna gönguleið um grænt svæði í Kópavogi sem verður leidd af listamanninum í eitt til tvö skipti.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

50

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102999

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 400.000 kr. til útgáfu- og afmælistónleika í Salnum í ágúst 2027 í tilefni af útgáfu nýrrar plötu, Síðast en ekki síst, sem inniheldur áður óútgefin lög við íslenskan skáldskap. Gert er ráð fyrir miðasölu.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

51

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102998

Söguhringur Frásagnarfélag óskar eftir styrk að upphæð 420.000 kr. til að halda fimm opna söguhringi í Kópavogi, einn í hverju hverfi bæjarins með það að markmiði að efla frásagnarlist, samveru og menningarlega þátttöku í nærumhverfi íbúa.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

52

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102995

Y gallery sækir um styrk að upphæð 1.500.000 kr. (ath.skv.leiðréttingu frá umsækjanda) til að halda sex sýningar íslenskra og erlendra samtímalistamanna árið 2027-2028 í sýningarrými fyrrum bensínstöðvar Olís í Hamraborg. Aðgangur að sýningunum er gjaldfrjáls.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

53

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102994

Kammerhópurinn Accademia delle dissonanze sækir um styrk að upphæð 400.000 kr. til að halda þrenna tónleika í Kópavogi (í Salnum, Lindakirkju og Hjallakirkju.) á starfsárinu 2027-2028, þar sem flutningur á eldri tónlist á upprunahljóðfæri er í forgrunni.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

54

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102992

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. til að halda fimm ókeypis söngstundir með virkri þátttöku barna á aldrinum 0-10 ára og fjölskyldum þeirra á mismunandi stöðum í Kópavogi á tímabilinu janúar 2027 til janúar 2028.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

55

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102990

Tveir einstaklingar sækja um styrk að upphæð 176.000 kr. til að setja upp nýjan gagnvirkan söngleik, Meðleik, sem byggir á klassískum íslenskum sönglögum, með þátttöku áhorfenda. Sýnt verður í Salnum, Reykjanesbæ og á Akureyri.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

56

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102988

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 450.000 kr. til verkefnisins ÆTIBEÐ, sem felst í að setja upp og fræða íbúa um gróðurbeð með ætilegum plöntum á fjórum leiksvæðum í Kópavogi sumarið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

57

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102987

Vökufélagið - félag þjóðlistafólks sækir um styrk að upphæð 3.000.000 kr. fyrir árlega hátíð sína, en styrknum er einkum ætlað að standa undir ungmennahátíð fyrir 16-26 ára.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

58

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102984

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 900.000 kr. til að halda stóran dansviðburð með raftónlist og plötusnúðum í Kópavogi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

59

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102982

Tveir einstaklingar sækja um styrk að upphæð 2.500.000 kr. til að kanna möguleika á stofnun atvinnuleikhóps í Kópavogi undir heitinu Listaleikhúsið í Kópavogi (LíK), með ólíkri nálgun.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

60

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102981

Elja kammersveit óskar eftir styrk að upphæð 1.329.000 kr. til að greiða laun flytjenda á tónleikunum Tileinkun á Tíbrá í Salnum auk kynningartónleika annars staðar í Kópavogi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

61

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102980

Félag íslenskra píanóleikara óskar eftir styrk að upphæð 2.250.000 kr. til að halda Alþjóðlegu píanókeppnina og sumarnámskeið WPTA í þriðja sinn í samstarfi við Salinn, Tónlistarskóla Kópavogs og Opna Listaháskólann.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

62

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102979

Tríó Jós óskar eftir styrk að upphæð 2.354.040 kr. til að flytja 21 tónlistarleiksýningu á öllum opinberum leikskólum Kópavogs til að kynna börnum klassíska tónlist og þjóðlagatónlist með söng, hreyfingu og virkri þátttöku.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

63

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102975

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 1.480.000 kr. til að þróa og setja upp þátttökuleikhús- og ritsmiðjuverkefnið Allir sem við þekktum sem að dóu, með einni eða fleiri sýningum.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

64

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

26102973

Sundballettinn Eilífðin sækir um styrk að upphæð 400.000 kr. til að halda sex sundballetttíma í sundlaugum Kópavogs haustið og veturinn 2027.