Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Hafnarstjórn - 85. fundur

að Bakkabraut 9

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Daði Ólafsson - formaður
  • Margrét Sigmundsdóttir - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - varafulltrúi
  • Þorleifur Friðriksson - varafulltrúi

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Kópavogshafnir. Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum

Lögð fram áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum, dags. 19. október.

Hafnarstjórn samþykkir framlagða áætlun samhljóða.

Almenn mál

02

Úttekt á slysavörnum í Kópavogshöfn

Bréf Siglingastofnunar Íslands, dags. 22. október, varðandi úttekt á slysavörnum í Kópavogshöfn.

Lagt fram. Hafnarstjórn felur hafnarverði að yfirfara athugasemdir og lagfæra í samræmi við athugasemdalista.

Almenn mál

03

Frumvarp til laga um breytingu á hafnarlögum - beiðni um umsögn

Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á hafnarlögum ásamt beiðni um umsögn.

Hafnarstjórn telur ekki þörf til athugasemda vegna frumvarpsins.

Almenn mál

04

AMATII verkefni Norðurheimskautsráðsins

Lögð fram beiðni Hafnarsambands Íslands um upplýsingar vegna AMATII verkefnisins.

Hafnarstjórn felur hafnarverði að svara erindinu og uppfræða hafnarstjórn um verkefnið.