Til baka í nefndaryfirlit
Hafnarstjórn - 129. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Jón Magnússon - formaður
- Ásdís Kristjánsdóttir - hafnarstjóri
- Jóhannes Júlíus Hafstein - aðalmaður
- Bergur Þorri Benjamínsson - aðalmaður
- Steini Þorvaldsson - aðalmaður
- Eva Sjöfn Helgadóttir - aðalmaður
- Andrés Pétursson - áheyrnarfulltrúi
- Jóhann Már Sigurbjörnsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - embættismaður
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir - starfsmaður nefndar
- Atli Hermannsson - hafnarvörður
- Auðun Helgason - lögfræðingur
Ritari
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir
Dagskrá fundar
Bæjarráð vísaði þann 20.10.2022 gjaldskrá Kópavogshafnar 2023 til nýrrar efnismeðferðar hafnarstjórnar. Þann 14.12.2022 vísar hafnarstjórn erindinu til frekari rýni sviðsstjóra umhverfissviðs, bæjarritara og varafomanns hafnarstjórnar. Nú lögð fram drög að nýrri gjaldskrá ásamt minnisblaði lögfræðideildar.
Hafnarstjórn samþykkir með öllum greiddum atkvæðum framlögð drög að nýrri gjaldskrá Kópavogshafnar.
Stærð hafnarsvæðis Kópavogshafnar.
Auður D. Kristinsdóttir kynnti.
Frá Andrési Péturssyni áheyrnarfulltrúa Viðreisnar, lögð fram fyrirspurn varðandi losun snjómoksturs.
Lagt fram.