Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Innkaupanefnd - 9. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sveinn Gíslason - formaður
  • Sigvaldi Egill Lárusson - aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Hjalti Jón Pálsson - starfsmaður nefndar
  • Loftur Steinar Loftsson - Þjónustustjóri
  • Steinn Sigríðar Finnbogason - lögfræðingur

Ritari

  • Katrín Arnórsdóttir

Dagskrá fundar

01

Naustavör leikskóli framkvæmd

Frá starfsmanni umhverfissviðs dags. 30.10.2025 er lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu á forvali fyrir samkeppnisútboð á verkframkvæmd og fullnaðarhönnun leikskólans við Naustavör. Lagt fram til ákvörðunar.

Lagt fram til samþykktar. Umræður.

Málinu er frestað til næsta fundar.

Nefndin kallar eftir rökstuðningi við val á innkaupaleið og kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.

Gestur víkur af fundi kl. 16:09.

Gestur kemur aftur á fund kl. 16:25 og víkur aftur af fundi kl. 16:38.

02

Erindi vegna meintra brota Sorpu bs. og aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins á samkeppnislögum

Lögð er fram upplýsingabeiðni frá Samkeppniseftirlitinu, erindi vegna meintra brota Sorpu bs og aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins á samkeppnislögum og ákvörðun bæjarráðs 30.10.2025 þar sem málið var tekið fyrir og vísað til umsagnar bæjarritara. Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar og upplýsinga.