Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 58. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
  • Magnús Jakobsson - varafulltrúi
  • Rannveig Bjarnadóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Jón Júlíusson

Dagskrá fundar

01

Samstarf íþróttafélaga 2016

Lagt fram bréf frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra íþróttadeildar, dagsett 7. apríl 2016 til stjórna íþróttafélaganna í Kópavogi, þar sem félögin eru hvött til að stofna /koma á samstarfs-/samráðsvettvangi íþróttafélaganna í bænum hið fyrsta.

Íþróttaráð samþykkir framlagt bréf.

02

Afnot af æfinga- og keppnisaðstöðu í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar frá hausti 2016.

Samkvæmt afnotareglum íþróttamannvirkja í Kópavogi ber íþróttafélögum í bænum að senda inn umsóknir um æfinga-og keppnistíma í íþróttamannvirkjum bæjarins 2-3var á ári.$line$Með vísan til fyrsta dagskrárliðar fundarins um samstarfvettvang íþróttafélaga mun við úthlutun æfingatíma fyrir nk. vetur verða tekið mið af ákvæðum 2. greinar Afnotareglna íþróttamannvirkja í Kópavogi

Íþróttaráð leggur áherslu á að unnið verði eftir Afnotareglum íþróttamannvirkja sem settar hafa verið og hvetur íþróttafélögin til að koma á fyrrgreindum samstarfs- / samráðsvettvangi.

03

Styrkir til íþróttamála í Kópavogi 2016

Greint frá því að send hafa verið út umsókarblöð fyrir iðkenda- og sérstyrki ársins 2016.

Úthlutun styrkja 2016 fer eftir sömu reglum og verið hefur síðustu ár.

04

Búnaður til æfinga og keppni í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2016

Lögð fram drög að samantekt íþróttafulltrúa yfir íþróttamannvirki í Kópavogi, gerð þeirra og búnað. Kynntar hugmyndir að ítarlegri samantekt og framsetning þeirra gagna.

Íþróttaráð fagnar því að hafin sé vinna við samantekt á aðstöðu og búnaði þeirra íþróttamannvirkja sem eru í Kópavogsbæ.