Íþróttaráð - 28. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Valdimar F Valdimarsson - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
- Evert Kristinn Evertsson - aðalfulltrúi
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Hrafn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Anna María Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Gunnar Guðmundsson
Dagskrá fundar
Íþróttaráð samþykkir endurskoðaðar reglur um Afrekssjóð íþróttaráðs. Auglýst verður eftir umsóknum í október og styrkir veittir á Íþróttahátíð Kópavogs.
Erindi frá Sunddeild Breiðabliks, dags. 11. september 2013, þar sem m.a er óskað eftir að innilaug sundlaugarinnar í Versölum verði lokuð meðan æfingar hjá E-hópi fara fram.
Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk sunddeildar um lokun laugar en felur starfsmönnum að koma til móts við aðrar óskir Sunddeildar eins og kostur er.
Erindi frá Golfklúbbi GKG, dags. 11. september 2013, þar sem óskað er eftir ferðastyrk vegna þátttöku kvennasveittar GKG í EM klúbbliða 26.-28. september í Búlgaríu.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
04
Dale Carnegie - Umsókn um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar v/ sjálfstyrkingarnámskeiða yrir börn og unglinga
Lagður fram tölvupóstur dags. 29. ágúst 2013, þar sem óskað er eftir aðild að Frístundastyrkjum Kópavogsbæjar v/ sjálfstyrkingarnámskeiða sem Dale Carnegie býður upp á.
<SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=EN-GB AR-SA? mso-bidi-language: EN-US; mso-fareast-language: EN-GB; mso-ansi-language: Roman?; New ?Times mso-fareast-font-family: 11.5pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; Times><STRONG>Íþróttaráð samþykkir umsókn Dale Carnegie um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna sjálfstyrkingarnámskeiða, með fyrirvara um samþykki Forvarnar- og frístundanefndar.</STRONG></SPAN>
Á fundinn mættu Áshildur Bragadóttir, framkvæmdastýra Markaðsstofu Kópavogs og Theódóra Þorsteinsdóttir, formaður stjórnar. Þær kynntu starfsemi Markaðsstofunnar.