Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 122. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Gylfason - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi
  • Sunna Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - íþróttafulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

01

Kynning á jaðaríþróttum

Alexander Vestfjörð Kárason, sem kynna átti jaðaríþróttir á fundinum boðaði forföll með stuttum fyrirvara, kynningunni er því frestað til næsta fundar.

Frestað til næsta fundar

02

Menntasvið - kynning á sviði og deildum

Lögð fram kynning á menntasviði Kópavogsbæjar og íþróttadeild sviðsins.

Sviðsstjóri menntasviðs og íþróttafulltrúi kynntu starfsemi menntasviðs sem og verkefni og umfang íþróttadeildar.

03

HK - Ósk um tímaúthlutun í Kórnum vegna tveggja knattspyrnumóta.

Lagt fram erindi frá aðalstjórn HK f.h knattspyrnudeildar félagsins dags. 02.06.2022, þar sem óskað er eftir því að fá afnot af Kórnum helgina 5.og 6. nóvember og 12.og 13. nóvember nk. undir knattspyrnumót yngri flokka.

Íþróttaráð samþykkir erindið.

04

Breiðablik sunddeild - Óskir um æfingapláss í sundlaugum Kópavogs 2022-2023

Lagt fram erindi frá Sunddeild Breiðabliks, dags. 21.06.2022, þar sem sótt er um laugarpláss í sundlaugum Kópavogs fyrir veturinn 2022-2023. Einnig lagt fram erindi frá deildinni, dags. 29.08.2022, þar sem óskað er eftir breytingum frá fyrri umsókn í Salalaug.

Íþróttaráð samþykkir umsókn deildarinnar um tíma í Sundlaug Kópavogs sem eru þeir sömu og á síðasta ári. Ráðið samþykkir einnig breytingartillögu deildarinnar varðandi Salalaug.

05

Akstur frístundavagna haust 2022

Rætt um rekstur frístundavagnsins. Kópavogsbær hefur í samvinnu við SÍK, Breiðablik, Gerplu og HK unnið að úrlausn málsins.

Deildarstjóri íþróttadeildar gerði grein fyrir stöðu mála varðandi akstur frístundavagnsins og þjónustu sem verður í boði varðandi vagninn í haust.

06

Íþróttaráð - áætlun fundartíma ráðsins

Lögð fram tillaga að fundaráætlun fyrir haust 2022

Fundaráætlun haustsins samþykkt.