Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 107. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Finnbogason - aðalmaður
  • Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson - aðalmaður
  • Hlín Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - íþróttafulltrúi

Ritari

  • Jón Júlíusson

Dagskrá fundar

01

Íþróttahátíð 2020

Á síðasta fundi frestaði íþróttaráð ákvörðun um dagsetningu á íþróttahátíðinni og með hvaða hætti hátíðin færi fram þar til ákvörðun sóttvarnaryfirvalda um fjöldatakmarkanir varðandi samkomuhald á komandi vikum liggi ljóst fyrir.

Íþróttaráð samþykkir að íþróttahátíð Kópavogs verði haldin í Salnum 15. janúar 2021.

02

Íþróttakarl og Íþróttakona Kópavogs - Framkvæmd kjörsins 2020

Frá árinu 2016 hefur bæjarbúum gefist tækifæri til að taka beinan þátt í kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs með rafrænni kosningu. Góð reynsla hefur verið af þessu fyrirkomulagi og lagt er til að unnið verði út frá sömu reglum og verið hefur við kjörið árið 2020.

Íþróttaráð samþykkir að unnið út frá sömu reglum og verið hefur sl. ár varðandi kjörið. Netkosning meðal íbúa standi yfir frá 30. desember til 10. janúar nk.

03

Tilnefningar til íþróttakonu og íþróttakarls Kópavogs 2020

Fundarhlé var gert á fundi til kl. 15:00 föstudaginn 11. des. <br />Fundi framhaldið kl. 15:00 daginn eftir.

Lagður fram listi með þeim íþróttakonum og íþróttakörlum sem tilnefnd eru af íþróttafélögum í Kópavogi vegna íþróttaársins 2020.

Íþróttaráð samþykkir að veita 32 íþróttamönnum í flokki 13-16 ára og 10 íþróttamönnum í flokki 17 ára og eldri, viðurkenningu ráðsins á Íþróttahátíð Kópavogs sem haldin verður 15 . janúar nk.

Íþróttafólk sem hlítur viðurkenningu íþróttaráðs að þessu sinni er;

Í 13-16 ára flokki:

Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Sigurður Baldur Ríkharðsson hestamannafélaginu Spretti, Daníel Wang og Nicole Chakmakova úr Tennisfélagi Kópavogs, Marín Aníta Hilmarsdóttir og Pétur Már Mortensen Birgisson úr bogfimifélaginu Boganum, Markús Birgisson og Júlía Kristín Jóhannesdóttir frjálsum íþróttum, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Hlynur Freyr Karlsson knattspyrnu, Embla Hrönn Halldórsdóttir og Logi Guðmundsson körfuknattleik, Margrét Davíðsdóttir skíði, Guðmundur Karl Karlsson og Kristín Helga Hákonardóttir sund, Tómas Pálmar Tómasson karate, og Gunnar Erik Guðmundsson skák öll úr Breiðabliki. Ásta María Armesto Nuevo og Finnur Hugi Finnsson dans DÍK, Hilmar Andri Lárusson og Hildur Maja Guðmundsdóttir fimleikar Gerplu, Karen Lind Stefánsdóttir og Dagur Fannar Ólafsson golf GKG, Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Aron Logi Hrannarsson dans HK, Henríetta Ágústsdóttir og Magnús Arnar Pétursson knattspyrna HK, Inga Dís Jóhannsdóttir og Viktor Már Sindrason handknattleikur HK, Helena Einarsdóttir og Jökull Jóhannsson blak HK, Björgvin Ingi Ólafsson borðtennis HK.

Í 17 ára og eldri flokki:

Íþróttaráð samþykkir að eftirfarandi íþróttafólk hljóti viðurkenningu íþróttaráðs í ár. Íþróttafólkið verður jafnframt í kjöri í vefkosningu meðal bæjarbúa frá 30.des til 10.jan nk. um íþróttakarl og íþróttakonu Kópavogs 2020.



Valgarð Reinhardsson fimleikar úr Gerplu, Bjarki Pétursson kylfingur úr GKG. Sonný Lára Þráinsdóttir knattspyrnu, Ingvar Ómarsson hjólreiðum, Patrik Viggó Vilbergsson sundi, Arnar Pétursson og Karen Sif Ársælsdóttir frjálsum íþróttum, Sóley Margrét Jónsdóttir kraftlyftingar öll úr Breiðabliki. Matthildur Einarsdóttir blak HK og Sofia Sóley Jónasdóttir tennis TFK.

Tilnefningar í 13-16 ára flokkinn eru skráðar undir 4. - 21. dagskrárlið í fundargerðinni.

04

Breiðablik - Skákdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Gunnari Erik Guðmundssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

05

HK - Borðtennisdeild- Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Björgvin Inga Ólafssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

06

Bogfimifélagið Boginn - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Marín Anítu Hilmarsdóttur og Pétri Má Morgensen Birgissyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

07

Gerpla - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Hildi Maju Guðmundsdóttur og Hilmari Andra Lárussyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

08

Breiðablik - Frjáls íþróttadeild- Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Júlíu Kristínu Jóhannesdóttur og Markúsi Birgissyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

09

Breiðablik - Karatedeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Tómasi Pálmari Tómassyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

10

Breiðablik - Körfuknattleiksdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Emblu Hrönn Halldórsdóttur og Loga Guðmundssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

11

Tennisfélag Kópavogs - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Nicole Chakmakova og Daníel Wang viðurkenningu í flokki 13-16 ára

12

Breiðablik - Knattspyrnudeild Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur og Hlyni Frey Karlssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

13

HK - Blakdeild- Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Helenu Einarsdóttur og Jökli Jóhannssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

14

HK - Handknattleiksdeild- Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Ingu Dís Jóhannsdóttur og Viktori Má Sindrasyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

15

Hestamannafélagið Sprettur - Hestaíþróttir - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Huldu Maríu Sveinbjörnsdóttur og Sigurði Baldri Ríkharðssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

16

Breiðablik -Sunddeild -Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Kristínu Helgu Hákonardóttur og Guðmundi Karli Karlssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

17

Breiðablik - Skíðadeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Margréti Davíðsdóttur viðurkenningu í flokki 13-16 ára

18

Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Karen Lind Stefánsdóttur og Degi Fannari Ólafssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

19

HK - Dansdeild- Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Rósu Kristínu Hafsteinsdóttur og Aroni Loga Hrannarssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

20

HK - Knattspyrnudeild- Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Henríettu Ágústsdóttur og Magnúsi Arnari Péturssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

21

Dansíþróttafélag Kópavogs - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 13-16 ára 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Ástu Maríu Armento Nuevo og Finni Huga Finnssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára

22

Sprettur - Hestaíþróttir - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Tilnefningar í aldursflokknum 17 ára og eldri eru skráðar undir 22. - 40. dagskrárlið hér á eftir.

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

23

Breiðablik - Sunddeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Patrik Viggó Vilbergssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

24

Bogfimifélagið Boginn - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

25

HK - Dansdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

26

Breiðablik - Hjólreiðadeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Ingvari Ómarssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

27

HK - Knattspyrnudeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

28

Breiðablik - Knattspyrnudeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Sonný Láru Þráinsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

29

Skotíþróttafélag Kópavogs - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

30

Breiðablik - Frjálsíþróttadeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Karen Sif Ársælsdóttur og Arnari Péturssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

31

Breiðablik - Kraftlyftingadeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Sóley Margréti Jónsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

32

Breiðablik - Skákdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

33

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Bjarka Péturssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

34

Tennisfélag Kópavogs - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Sofiu Sóley Jónasdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

35

Breiðablik - Karatedeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

36

HK - Borðtennisdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

37

Gerpla - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Valgarð Reinhardssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

38

HK - Blakdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Íþróttaráð samþykkir að veita Matthildi Einarsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

39

HK - Handknattleiksdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

40

Breiðablik - Körfuknattleiksdeild - Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu 17 ára og eldri 2020

Fulltrúar deildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

41

Tilnefningar - Flokkur ársins 2020

Íþróttaráð frestar kjöri á flokki ársins 2020 til næsta fundar.

42

Breiðablik - Knattspyrnudeild- Tilnefning til flokks ársins 2020

Afgreiðslu frestað

43

Golfklúbbur Kópaovgs og Garðabæjar - Karlasveit GKG - Tilnefning til flokks ársins 2020

Afgreiðslu frestað.