Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 143. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Gunnar Gylfason - aðalmaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
  • Sunna Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Thelma Bergmann Árnadóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

01

Hörðuvellir- Tröllakór. Breytt skipulagsmörk.

Á fundinn mættu Auður D. Kristinsdóttir, skipulagsfulltrúi og Elín Mjöll Lárusdóttir, arkitekt á skipulagsdeild og kynntu breytt skipulagsmörk við Hörðuvelli - Tröllakór.

Íþróttaráð þakkar Auði og Elínu Mjöll fyrir góða kynningu.

Íþróttaráð leggur áherslu á að tryggja þurfi gott aðgengi að hleðsludyrum á suðurhluta Kórsins svo að stærri ökutæki geti athafnað sig þar þegar stórir viðburðir eru haldnir í mannvirkinu. Með breyttu deiliskipulagi takmarkast möguleikar á að komast að og frá hleðsludyrunum.

02

Fjármál íþróttafélaga

Deildarstjóri íþróttadeildar lagði fram og kynnti yfirlit yfir fjárhagsstöðu íþróttafélaga í Kópavogi á tímabilinu 2014 - 2023.

Lagt fram

03

Ósk um merkingu og nafngift á Kórnum í auglýsingarskyni

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn HK, dags. 15. júlí 2024, þar sem óskað er samþykkis á staðsetningum og stærð auglýsinga vegna mögulegar nafngiftar íþróttamannvirkja í Kórnum. Vísað er til reglna íþróttaráðs um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.

Íþróttaráð vísar í umsögn deildarstjóra eignadeildar og felur deildarstjóra íþróttadeildar að svara erindinu.

04

Ísbjörninn - Ósk um styrk vegna þátttöku í Meistaradeild Evrópu í futsal.

Lagt fram erindi frá Knattspyrnufélaginu Ísbirninum, dags. 7. ágúst 2024, þar sem óskað er eftir styrk frá íþróttaráði vegna þátttöku félagsins í Meistaradeild Evrópu í Futsal. En styrkir frá UEFA og KSÍ ná ekki að dekka kostnað félagsins við þátttöku.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

05

HK - Umsókn um Krónumót 2024 og janúarmót 2025 í Kórnum

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn HK dags. 1. ágúst 2024, þar sem óskað er eftir að fá afnot af Kórnum helgina 9.-10. nóvember, 16.-17. nóvember 2024 og 18.-19. janúar 2025 undir knattspyrnumót yngri flokka.

Íþróttaráð samþykkir erindið.

06

Framkvæmdir og viðhald íþróttamannvirkja 2024

Deildarstjóri íþróttadeildar fór yfir stöðu framkvæmda og viðhaldsverkefna í íþróttamannvirkjum fyrir árið 2024.

Lagt fram

07

Akstur Frístundarútu veturinn 2024-2025

Deildarstjóri íþróttadeildar lagði fram minnisblað og fór yfir akstur Frístundarútu veturinn 2024-2025 og þær breytingar sem orðið hafa.

Lagt fram.