Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 138. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Kári Karlsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sverrir Kári Karlsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Gylfason - aðalmaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Matthías Hjartarson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Sunna Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - íþróttafulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Íris Svavarsdóttir - embættismaður

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

01

Niðurstöður viðhorfskönnunar Virkni og Vellíðan haustið 2023

Á fundinn mættu Eva Katrín Friðgeirsdóttir og Fríða Karen Gunnarsdóttir, verkefnastjórar Virkni og Velíðan og kynntu fyrir ráðinu niðurstöður viðhorfskönnunar verkefnisins fyrir haustið 2023.

Íþróttaráð þakkar Evu Katrínu og Fríðu Karen fyrir góða kynningu og fagnar því hve verkefnið hefur þróast vel.

02

Endurskoðun á vinnureglum varðandi greiðslu atkvæða um kjör á íþróttafólki Kópavogsbæjar

Lögð fram tillaga að endurskoðun á Vinnureglum við greiðslu atkvæða í kjöri íþróttafólks Kópavogs, sem er í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á Reglugerð íþróttaráðs Kópavogs um kjör á íþróttafólki Kópavogs.

Íþróttaráð samþykkir framlagðar breytingar á Vinnureglum við greiðslu atkvæða í kjöri íþróttafólks Kópavogs.

03

Íþróttafólk Kópavogs - Framkvæmd kjörsins 2023

Frá árinu 2016 hefur bæjarbúum gefist tækifæri til að taka beinan þátt í kjöri á íþróttafólki Kópavogs með rafrænni kosningu. Góð reynsla hefur verið af þessu fyrirkomulagi og er því lagt er til að unnið verði út frá sömu aðferðafræði og hingað til og í samræmi við endurskoðaðar vinnureglur.

Íþróttaráð samþykkir að unnið verði út frá sömu reglum og verið hefur sl. ár varðandi kjörið. Netkosning meðal íbúa standi yfir frá 20. desember til 6. janúar nk.

04

Erindi vegna sameiginlegs frístundaraksturs Breiðabliks, Gerplu, HK og Kópavogsbæjar

Lögð fram greinargerð og tillaga varðandi rekstur frístundabíls frá menntasviði, dags. 11. nóvember 2023, en málinu var vísaði til umfjöllunar í íþróttaráði á 3153. fundi bæjarráðs með eftirfarandi bókun:

"Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar íþróttaráðs".

Umræður urðu um málið.

Fundarhlé var gert kl. 16:42, fundi framhaldið kl. 16:59.

Gunnar Gylfason, fulltrúi Samfylkingar, Einar Þorvarðarson, fulltrúi Viðreisnar, Thelma Árnadóttir, fulltrúi Vina Kópavogs og Indriði Ingi Stefánsson, fulltrúi Pírata leggja fram eftirfarandi bókun.

"Það vekur furðu að meirihluti Sjálfstæðis og Framsóknarflokks ætli að auka álögur á sumar barnafjölskyldur í bænum þannig að kostnaður foreldra við þátttöku barna þeirra í íþróttum geti hækkað um rúmlega 40%.

Kópavogsbær ákvað staðsetningu íþróttamannvirkja bæjarins. Frístundaakstur er forsenda þess að nýta megi þessi mannvirki eins vel og kostur er þar sem æfingar geta hafist strax að loknum skóladegi og staðið fram á kvöld. Krafa foreldra um að börnin hafi lokið sínu frístundastarfi þegar vinnudegi foreldra lýkur er hávær, en með akstrinum má að einhverjum hluta koma til móts við þær kröfur.

Einnig er það forsenda fyrir því að hægt sé að taka á móti sem flestum börnum sem óska þess að æfa með félögunum að hægt sé að byrja æfingar sem fyrst á daginn.

Við teljum rétt að Kópavogsbær taki á sig þann hlut sem foreldrum er ætlað að greiða samkvæmt greinargerðinni".

Meirihluti íþróttaráðs leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fulltrúum meirihlutans finnst eðlilegt að skoða hóflega gjaldtöku á frístundarvagninum sambærilegt við það sem tíðkast hjá nærliggjandi sveitarfélögum. Bærinn er eftir sem áður að niðurgreiða þjónustuna. Styrkir til íþróttafélaga í Kópavogi eru með því hæsta sem þekkist á landinu og því eðlilegt að íþróttafélögin forgangsraði þeim fjármunum að einhverju leyti í þágu frístundavagnsins.

Sunna Guðmundsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Guðmundur Jóhannesson

05

Tilnefningar um kjör á íþróttafólki Kópavogs 2023

Lagður fram listi með því íþróttafólki sem tilnefnt er af íþróttafélögum í Kópavogi vegna íþróttaársins 2023 í flokki 17 ára og eldri ásamt einni frestaðri tilnefningu í flokki 13-16 ára.

Íþróttaráð samþykkir að eftirfarandi íþróttafólk hljóti viðurkenningu íþróttaráðs í ár í flokki 17 ára og eldri. Íþróttafólkið verður jafnframt í kjöri í vefkosningu meðal bæjarbúa frá 20. desember til 6. janúar nk. um íþróttafólk Kópavogs 2023.

Freyja Dís Benediktsdóttir bogfimi Boginn, Sóley Margrét Jónsdóttir kraftlyftingar Breiðablik, Thelma Aðalsteinsdóttir áhaldafimleikar Gerpla, Valgarð Reinhardsson áhaldafimleikar Gerpla, Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrna Breiðablik, Ingvar Ómarsson hjólreiðar Breiðablik, Sigurður Örn Ragnarsson þríþraut Breiðablik, Birna Kristín Kristjánsdóttir frjálsar íþróttir Breiðablik, Herdís Björg Jóhannsdóttir hestaíþróttir Sprettur, Vignir Vatnar Stefánsson, skák Breiðablik.



06

Hestamannafélagið Sprettur - Tilnefning til íþróttafólks ársins 13-16 ára 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Ragnari Bjarka Sveinbjörnssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.

07

Breiðablik - Karatedeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

08

Bogfimifélagið Boginn - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Freyju Dís Jónsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

09

Skotíþróttafélag Kópavogs - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúi félagsins er ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

10

Breiðablik - Kraftlyftingadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Sóleyju Margréti Jónsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

11

Dansíþróttafélag Kópavogs - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Engin tilnefning barst frá Dansíþróttafélagi Kópavogs að þessu sinni.

12

Breiðablik - Hjólreiðadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Ingvari Ómarssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

13

Tennisfélag Kópavogs - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúi félagsins er ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

14

HK - Blakdeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

15

Breiðablik - Frjálsíþróttadeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Birnu Kristínu Kristjánsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

16

Dansfélagið Hvönn - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúi félagsins er ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

17

Breiðablik - Skákdeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Vigni Vatnar Stefánssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

18

Breiðablik - Knattspyrnudeild - Tilnefningar til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Höskuldi Gunnlaugssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

19

HK - Handknattleiksdeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

20

Hestamannafélagið Sprettur - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Herdísi Björgu Jóhannsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

21

HK - Dansdeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúi félagsins er ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

22

Gerpla - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Thelmu Aðalsteinsdóttur og Valgarði Reinhardssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

23

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

24

Breiðablik - Þríþrautardeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Íþróttaráð samþykkir að veita Sigurði Erni Ragnarssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

25

Breiðablik - Körfuknattleiksdeild - Tilnefningar til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

26

HK - Knattspyrnudeild - Tilnefning til íþróttafólks ársins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

27

Breiðablik - Sunddeild - Tilnefning til íþróttafólks árins 17 ára og eldri 2023

Fulltrúar félagsins eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.

28

Afrekssjóður íþróttaráðs - úthlutun 2024

Lagður fram listi með umsóknum íþróttamanna um styrk úr Afrekssjóði íþróttaráðs fyrir árið 2024.

Íþróttaráð samþykkir að veita afreksstyrk úr Afrekssjóði íþróttaráðs á árinu 2024 til 14 íþróttamanna.

Átta hljóta styrk að upphæð 150 þúsund kr. og sex styrk að upphæð 300 þúsund kr.

29

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkumsókn Ágústs Inga Davíðssonar.

30

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkumsókn Davíðs Jónssonar.

31

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Júlíu Kristínu Jóhannesdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

32

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Birnu Kristínu Kristjánsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

33

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Þorleifi Einari Leifssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

34

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Thelmu Aðalsteinsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.

35

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Degi Kára Ólafssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

36

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkumsókn Kristins Jónssonar.

37

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Martin Bjarna Guðmundssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

38

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Marín Anítu Hilmarsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.

39

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkumsókn Bjargar Hákonardóttur.

40

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Ingvari Ómarssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.

41

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Freyju Dís Benediktsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.

42

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Arnari Péturssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.

43

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Valgarði Reinhardssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.

44

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkumsókn Sindra Hrafns Guðmundssonar.

45

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Hildi Maju Guðmundsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

46

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Elvari Kristni Gapunay styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

47

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð samþykkir að veita Ásdísi Maríu Davíðsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.

48

Umsókn um afreksstyrk Kópavogs

Íþróttaráð getur ekki orðið við styrkumsókn Gerplu vegna meistaraflokks kvenna í Hópfimleikum.