Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 110. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Heiðdís Geirsdóttir - formaður
  • Hildur María Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
  • Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
  • Ragnar Guðmundsson - aðalmaður
  • Helga G. Halldórsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karítas Eik Sandholt - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Karítas Eik Sandholt

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Ragnars Guðmundssonar um kynningu á sviði upplýsingatækni og persónuverndar

Ásmundur R. Richardsson persónuverndarfulltrúi heldur kynningu samkvæmt beiðni jafnréttis- og mannréttindaráðs sem óskaði eftir kynningu á sviði upplýsingatækni og persónuverndar um þær reglur sem gilda um notkun nemenda á tækjum og hugbúnaði í eigu skólanna. Jafnframt er óskað eftir kynningum á meðferð upplýsinga er varðar persónuleg málefni íbúa bæjarins.

Lagt fram og kynnt

Almenn mál

02

Tillaga bæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssonar um opin fund jafnréttis- og mannréttindaráðs

Umræða um ábendingar og tillögugátt frá bæjarbúum í gegnum vef bæjarins.

Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að hefja undirbúning fyrir fund sem haldinn verður fyrri hluta næsta árs.

Almenn mál

03

Styrkur jafnréttis- og mannréttindaráðs 2025

Umræða um auglýsingu vegna tilnefninga og umsókna til viðurkenningar og styrks jafnréttis- og mannréttindaráðs

Umræða um að auglýsing um viðurkenningu og styrk yrði birt 6. nóvember til 26. nóvember og að ráðið úthluti styrk í janúar 2025.