Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 84. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Helgi Hrafn Ólafsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Leikskóladeild-mat og kannanir

Kynning á niðurstöðum starfsánægjukönnunar sem framkvæmt var eftir áramót í leikskólum Kópavogs.

Leikskólanefnd fagnar niðurstöðum starfsánægjukönnunarinnar.

Almenn mál

02

Kór-Eftirlit 2017

Umsókn um endurnýjun leyfis til reksturs leikskóla.

Umsóknin um endurnýjun leyfis er samþykkt.

Almenn mál

03

Waldorfskólinn-Eftirlit 2017

Umsókn um endurnýjun leyfis til reksturs leikskóla

Umsókn um endurnýjun leyfis er samþykkt.

Almenn mál

04

Beiðni um breytingu á skipulagsdögum vegna námsferðar

Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir tilfærslu á einum skipulagsdegi vegna námsferðar erlendis.

Leikskólanefnd samþykkir tilfærslu á skipulagsdegi Kópahvols vegna námsferðar erlendis.

Almenn mál

05

Beiðni um breytingu á skipulagsdögum

Leikskólinn Álfatún óskar eftir tilfærslu á einum skipulagsdegi vegna námsferðar erlendis.

Leikskólanefnd samþykkir tilfærslu á skipulagsdegi Álfatúns vegna námsferðar erlendis.

Almenn mál

06

Starfsáætlanir Efstihjalli

Leikskólinn Efstihjalli leggur fram leikskóladagatalið fyrir skólaárið 2017-2018

Leikskólanefnd samþykkir skóladagatal Efstahjalla fyrir árið 2017-2018.

Almenn mál

07

Leikskóladeild-Óskað eftir leyfi til rannsóknarverkefnis

Meistaranemi í menntunarfræðum leikskóla við Háskóla Íslands óska eftir leyfi til að framkvæma rannsókn sem fjallar um kvótaflóttafólk frá Sýrlandi sem hefur komið til Íslands á undanförum tveimur árum. Rannsóknin beinist að börnum á leikskólaaldri, foreldrum og þekkingu þeirra og væntingum til leikskóla á Íslandi

Leikskólanefnd samþykkir beiðnina fyrir sitt leiti.