Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 101. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bergþóra Þórhallsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Hákon Helgi Leifsson - aðalmaður
  • Valéria Kretovicová - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Leikskóladeild-Þróunarverkefni með áherslu á málþroska og lestur

Ásthildur Snorradóttir talmeinafræðingur kynnir verkefnið snemmtæk íhlutun í leikskólum Kópavogs.

Leikskólanefnd þakkar Ásthildi Snorradóttir fyrir greinagóða kynningu á afar áhugaverðu verkefni.

Almenn mál

02

Starfsáætlun leikskólans Kórs

Starfsáætlun leikskólans Kórs fyrir skólaárið 2018-2019 lögð fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Kórs fyrir skólaárið 2018-2019.

Almenn mál

03

Umsókn og endurnýjun á leyfi

Beiðni um endurnýjun á leyfi til daggæslu í heimahúsi í Kópavogi.

Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heima húsi.

Almenn mál

04

Beiðni um leyfi til rannsóknar á aðlögunarhæfni stjórnenda

Beiðni um leyfi til að gera rannnsókn á aðlögunarhæfni stjórnenda í leikskólum Kópavogs.

Leikskólanefnd hafnar beiðninni á grundvelli eftirfarandi. Ekki liggur fyrir að verkefnið sé framkvæmanlegt út frá persónuverndarsjónarmiðum. Þá komu fram athugasemdir um hvort rétt væri að framkvæma verkefnið í heimabyggð, stærð þýðis og rekjanleika.

Almenn mál

05

Leikskóladeild-áframhald á rannsókn á útbeiðslu ónæmra baktería hjá leikskólabörnum.

Beiðni um framlengingu á leyfi til rannsóknar á útbreðslu ónæmra baktería hjá leikskólabörnum í Kópavaogi.

Leikskólanefnd samþykkir beiðnina að fengnu leyfi foreldra og leikskólastjóra.