Leikskólanefnd - 14. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Dagskrá fundar

Nýjar reglur hafa verið samþykktar um ráðningar hjá Kópavogsbæ. Leikskólastjórar munu því framvegis ráða starfsfólk en einungis ráðningar leikskólastjóra fara fyrir leikskólanefnd og bæjarráð.

Leikskólanefnd lýsir yfir áhyggjum af því að fella eigi niður afslátt starfsmanna leikskóla á leikskólagjöldum barna. Enn er langt í land með að í leikskólum Kópavogs sé hlutfall leikskólakennara það sem lög gera ráð fyrir. Leikskólanefnd óttast brottfall starfsmanna. Sparnaður sem áætlað er að ná með þessum aðgerðum er ekki mikill miðað við þær afleiðingar sem þær gætu haft í för með sér.

Farið yfir stöðuna.

Leikskólanefnd lýsir yfir ánægju sinni með Umhverfisstefnu Kópavogs.

A: Ásta fulltrúi foreldra upplýsti að þetta væri síðasti fundurinn sem hún situr. Ásta mun kalla saman formenn foreldraráða til að velja nýjan fulltrúa.
Leikskólanefnd þakkar Ástu fyrir gott samstarf á liðnum árum og óskar henni velfarnaðar.