Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 85. fundur

á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Helgi Hrafn Ólafsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Leikskóladeild-starfsmannamál 2017

Deildarstjóri leikskóladeildar upplýsti fundarmenn um stöðuna í starfsmannamálum í leikskólunum núna í haust.

Almenn mál

02

Fundaráætlun leikskólanefndar

Fundaráætlun leikskólanefndar fyrir skólaárið 2017-2018 lögð fram.

Leikskólanefnd samþykkir fundaráætlunina.

Almenn mál

03

Leikskóladeild-þróunarsjóður 2017

Umsóknir um syrk úr þróunarsjóði leikskóla lagt fram til úrvinnslu.

Leikskólanefnd samþykkir tillögu leikskóladeildar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla Kópavogs.

Almenn mál

04

Leikskóladeild-Þróunarverkefni með áherslu á málþroska og lestur

Lagt fram til kynningar.

Leikskólanefnd lýsir ánægju sinni með mjög áhugavert verkefni.

Almenn mál

05

Starfsáætlanir Fífusalir

Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Fífusala.

Almenn mál

06

Ytra mat á leikskólanum Fífusölum

Lagt fram til kynningar.

Niðurstöður ytra mats leikskólans Fífusala kynntar fyrir nefndarmönnum.

Almenn mál

07

Daggæsla-samkomulag um miðlun upplýsinga vegna daggæslu í heimahúsum

Lagt fram til kynningar.

Leikskólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag um miðlun upplýsinga vegna daggæslu í heimahúsum, sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa gert með sér, og vísar málinu til bæjarráðs.

Almenn mál

08

Beiðni um breytingu á skipulagsdegi Lækjar

Leikskólanefnd samþykkir tilfærslu á skipulagsdeginum 20. nóvember til 17. maí í leikskólanum Læk vegna námsferðar erlendis. Leikskólanefnd bendir á að 21. maí er rauður dagur, annar í hvítasunnu.