Leikskólanefnd - 43. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Aðalsteinn Jónsson - formaður
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Dagskrá fundar
01
- Hugsum um heilsuna - Beiðni um sð fá að innleiða forprófaða heilsufræðslu til starfsfólks og fjölskyldna barna á forskólaaldri
Erla Stefanía Magnúsdóttir, leikskólastjóri kynnti verkefni sem miðar að því að bæta heilsu starfsmanna. Einnig eru námskeið fyrir foreldra. Vitundarvakning hefur orðið hjá starfsfólki og heilbrigði hefur aukist. Erlu Stefaníu þakkað fyrir fróðlegt erindi.
Sindri Sveinsson, deildarstjóri rekstrardeildar og Lilja Ástudóttir, innkaupafulltrúi fóru yfir fjárhagsáætlun og innkaup vegna leikskóla.Leikskólanefnd þakkar góða kynningu.
Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlun leikskólans Kórs og lýsir yfir ánægju með áætlunina.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa frestað öllum framkvæmdum í Guðmundarlundi um óákveðinn tíma. Erindinu er því hafnað.
Lögð fram kostnaðaráætlun leikskólafulltrúa. Arnþór þakkar greinargóð svör.
Lagðir fram útreikningar leikskólafulltrúa. Sigurður þakkar útreikningana.
Lagðar fram tölulegar upplýsingar sem leikskólafulltrúi hefur tekið saman, um börn í leikskólum í Kópavogi, í einkaleikskólum og hjá dagforeldrum. Einnig upplýsingar um starfsmenn, hlutfall leikskólakennara ofl. Að síðustu kostnaðarútreikningar vegna ársins 2012.
Ljóst er að viðkomandi dagforeldri hefur ekki farið eftir starfsreglum um leyfisveitingar og lítur leikskólanefnd málið alvarlegum augum. Leitast verður eftir að samræming verði milli sveitarfélaga hvað þetta varðar. Leikskólanefnd felur starfsmönnum Menntasviðs að bregðast við í samræmi við greinargerð og umræðum á fundinum.

Fundargerð 3. fundar leikskólastjóra lögð fram.
Leikskólanefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður þegar þær liggja fyrir.
Leikskólanefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður þegar þær liggja fyrir.
A: Sigrún H. Jónsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra bendir á að leikskólanefnd lesi vel starfsáætlanir leikskólanna og umsagnir foreldra.