Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 12. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Ritari

  • Sesselja Hauksdóttir

Dagskrá fundar

01

Starfsmannamál - leikskólanefnd 02.11.2010

<DIV&gt;<DIV&gt;Leikskólanefnd samþykkir umsóknir og ósk um launalaust leyfi</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Sumarleyfi leikskóla Kópavogs

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lögð fram greinargerð leikskólafulltrúa um mögulega útfærslu á vetrarleyfum í leikskólum. </DIV&gt;<DIV&gt;Í ljósi fjárhagsstöðu Kópavogsbæjar og að teknu tilliti til reynslu leikskólastjóra af tveggja vikna sumarlokunum leikskólanna leggur meirihluti&nbsp;leikskólanefndar til að sumarlokanir árið 2011 verði samfleytt í fjórar vikur. Nánari útfærsla verði í höndum leikskólafulltrúa í samvinnu við leikskólastjóra. </DIV&gt;<DIV&gt;Minnihluti leikskólanefndar leggur fram eftirfarandi bókun: Minnihluti leikskólanefndar&nbsp;harmar ákvörðun meirihlutans á sumarlokunum leikskóla bæjarins og telur þann sparnað sem fylgir ákvörðuninni lítinn í samanburði við þjónustuskerðingu gagnvart foreldrum. &nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Vefsíðumál leikskóla

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lögð fram greinargerð forstöðumanns UT deildar um kostnaðardreifingu, nettengingar o.fl.&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Við skoðun á tölvukostnaði leikskólanna kemur í ljós að sú aðferðafræði sem beitt er í útdeilingu kostnaðar upplýsingatæknideildar þ.e. að deila heildarkostnaði niður á fjölda útstöðva er ógagnsæ og afar ósanngjörn gagnvart leikskólunum. </DIV&gt;<DIV&gt;Það er ljóst að samkvæmt þessari aðferðafræði þá hefur aukinn kostnaður annarra stofnanna bæjarins bein áhrif á rekstrarreikning leikskólanna en þó án þess að leikskólastjórar hafi nokkuð um þann aukna kostnað að segja og skerðir þar að auki það rekstarfé sem leikskólastjórar hafa til umráða. </DIV&gt;<DIV&gt;Það er því ósk leikskólanefndar að í bókhaldi bæjarins verði kostnaður færður á það svið sem til hans stofnar. &nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

04

Stækkun leikskólans Fífusala

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Tekið fyrir bréf leikskólastjóra í Fífusölum þar sem bent er á þann möguleika að stækka leikskólann með því að bæta við húsnæði. </DIV&gt;<DIV&gt;Leikskólanefnd lítur jákvætt á erindi leikskólastjóra í Fífusölum í ljósi þess að það skortir leikskólarými í efri byggðum. Leikskólanefnd felur tæknideild að skoða möguleika á lausum stofum við Fífusali eða aðra leikskóla á svæðinu. Einnig aðra möguleika til reksturs leikskóla í Hvörfum, Þingum eða Kórum. </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

05

Fundargerðir leikskólastjóra 2010 - 2011

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Fundargerðin rædd. </DIV&gt;<DIV&gt;Hugmyndir leikskólastjóra um hagræðingu lagðar fram og ræddar. Frekari umræðu&nbsp;frestað til næsta fundar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

6. Önnur mál

A: Erindi frá Strætó um að leikskólabörn skreyti strætó fyrir jólin. Leikskólanefnd fagnar þessu erindi.

Næsti fundur verði 16. nóvember.

Fundi slitið kl. 18.10