Leikskólanefnd - 26. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Friðrik Friðriksson - áheyrnarfulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Aðalsteinn Jónsson - aðalfulltrúi
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Formaður leggur til að Ólöf Pálína Úlfarsdóttir verði varaformaður. Arnþór Sigurðsson býður sig fram á móti. Atkvæði féllu þannig að Arnþór hlaut 2 atkvæði en Ólöf Pálína 3 og er hún því kjörin varaformaður.
Ákveðið að halda fundi áfram á sama tíma, fyrsti þriðjudagur í mánuði kl. 16.30.
Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu
Farið yfir teikningar af húsi í eigu Skógræktarfélags KópavogsRæddar hugmyndir um notkun þess undir leikskólastarf Óskað er eftir nánari kostnaðargreiningu frá umhverfissviði og leikskólaskrifstofu. Einnig hve langan tíma framkvæmdir taki. Ath. með veginn að Guðmundarlundi sem er ekki greiðfær. Kalla einnig eftir kostnaðargreiningu við að setja lausar stofur við Sólhvörf og Rjúpnahæð.
Kynntar hugmyndir um nýjan leikskóla. Leikskólanefnd leggur til að nýr leikskóli við Austurkór (Rjúpnahæð) verði boðinn út sem fyrst og að hann verði tilbúinn 2013/2014.
Tillögur leikskólafulltrúa að breytingum samþykktar.
Erindinu er hafnað þar sem enn er eftirspurn eftir leikskólarými og aðrir leikskólar eru verr settir en Núpur. Leikskólanefnd telur að stefna beri að því að í öllum leikskólum sé heildarrými á barn að lágmarki 7 fm. Þetta verði framkvæmt í áföngum eftir því sem eftirspurn/biðlisti gefur tilefni til.
Kynningu leikskólafulltrúa frestað til næsta fundar sem verði 29. mars. kl. 16.30. Varamönnum verði boðaðir á þann fund. Aprílfundur falli niður.
A: Lögð fram umsögn Samleiks um ósk leikskólastjóra um aukningu á undirbúningstíma um 8 klst. á skólaárinu 2012-2013. sem samþykkt var í Bæjarráði.