Leikskólanefnd - 111. fundur
á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Bergþóra Þórhallsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMargrét Friðriksdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaðurBoðaði forföllAndri Steinn Hilmarsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sverrir Kári Karlsson - formaður
- Erla Dóra Magnúsdóttir - aðalmaður
- Hákon Helgi Leifsson - aðalmaður
- Valéria Kretovicová - áheyrnarfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Karen Rúnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Bergrún Ísleifsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÁslaug Pálsdóttir Ragnheiðard. - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Sigurlaug Bjarnadóttir
Dagskrá fundar
Eyþór Eðvarðsson leiðbeinandi Þekkingarmiðlunar kynnir námskeiðið Að stjórna í leikskóla, sem er námskeið sem Þekkingarmiðlun er að halda fyrir alla deildarstjóra í Kópavogi.
Eyþór Eðvarðsson leiðbeinandi Þekkingarmiðlunar kynnti námskeiðið "Að stjórna í leikskóla" sem er 18 klukkustunda námskeið sem haldið er fyrir alla deildarstjóra leikskóla Kópavogsbæjar.Þökkum fyrir frábæra kynningu á námskeiðinu.
Starfsáætlun leikskólans Rjúpnahæðar fyrir skólaárið 2019-2020 lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Rjúpnahæðar fyrir skólaárið 2019-2020.
Starfsáætlun leikskólans Efstahjalla fyrir skólaárið 2019-2020 lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Efstahjalla fyrir skólaárið 2019-2020.
Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi á skólaárinu 2019-2020
Hafnað með tilvísun í reglur um skipulagsdaga.
Umsókn um endurnýjun á leyfi til dagagæslu barna í heimahúsi í Kópavogi lögð fram til samþykktar
Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.
Umsókn um leyfi til dagagæslu barna í heimahúsi í Kópavogi lögð fram til samþykktar
Leikskólanefnd óskar eftir frekari gögnum.
Áfangaskýrslur tveggja þróunarverkefna á skilum skólastiga sem hlutu styrk frá Kópavogsbæ 218 lagðar fram.
Lagt fram.
Umsókn um viðbótar skipulagsdag leikskólans Rjúpnahæðar vegna námsferðar erlendis lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd hafnar beiðninni á forsendum reglna um skipulagsdaga.