Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 149. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Matthías Páll Imsland - aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hermann Ármannsson - aðalmaður
  • Jóhanna Pálsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Leó Snær Pétursson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Eva Sjöfn Helgadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Karen Rúnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bryndís Baldvinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigríður Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún B I le Sage de Fontenay - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Menntasvið-Starfshópur um starfsumhverfi leikskóla

Hugarflug um framtíð skipulags og starfsumhverfi leikskóla Kópavogsbæjar sem María Kristín Gylfadóttir, verkefnastjóri og Vigdís Guðmundsdótt leikskólaráðgjafi stýra.

Leikskólanefnd tók þátt í hugarflugi og fagnar þeirri vinnu sem stendur yfir til umbóta í starfsumhverfi leikskólanna.

Almenn mál

02

Leikskólinn Kópasteinn

Lagt fram til upplýsingar.

Lagt fram

Almenn mál

03

Leikskóladeild-gæsluvellir

Lagt fram til kynningar.

Frestað til næsta fundar

Almenn mál

04

Leikskólinn Fífusalir óskar eftir 6. skipulagsdeginum vegna námsferðar erlendis

Leikskólinn Fífusalir óskar eftir viðbótar skipulagsdegi fyrir skólaárið 2022-2023 vegna námsferðar erlendis.

Leikskólanefnd samþykkir beiðni leikskólans Fífusala um viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar erlendis, enda samræmist það verklagsreglum um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla.

Almenn mál

05

Erindi frá Samleik - fyrirkomulag samskipta við foreldra

SAMLEIK ítrekar beiðni um upplýsingar varðandi samskiptareglur félagsins við foreldra leikskólabarna.

Að beiðni menntasviðs er stjórnsýslusvið Kópavogsbæjar að vinna leiðbeiningar til stjórna foreldrafélaga, Samkóp og Samleik, varðandi samskiptaleiðir og upplýsingamiðlun til foreldra í leik- og grunnskólum. Menntasvið kynnir þau gögn á fundi leikskólanefndar um leið og þau liggja fyrir.

Almenn mál

06

Umsókn um endurnýjun á leyfi.

Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi lögð fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.