Leikskólanefnd - 176. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Heiðdís Geirsdóttir - formaður
- Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaðurBoðaði forföllHannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Bergur Þorri Benjamínsson - varaformaður
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Jóhanna Pálsdóttir - aðalmaður
- Heiða Björk Þórbergsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHeiða Björk Þórbergsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Eva Sjöfn Helgadóttir - áheyrnarfulltrúi
- Bryndís Baldvinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllBryndís Baldvinsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Sigríður Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
- Aldís Sif BjarnhéðinsdóttirBoðaði forföllAldís Sif BjarnhéðinsdóttirSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Sigrún Hulda Jónsdóttir
Dagskrá fundar
Sólrún Día Friðriksdóttir, verkefnastjóri í stafrænni þróun, kynnir stafræn skóladagatöl í leik- og grunnskólum Kópavogs.
Leikskólanefnd þakkar Sólrúnu Díu fyrir góða kynningu og fagna því að skóladagatöl leik- og grunnskóla eru aðgengilegri foreldrum.
Gestur vék af fundi 17:20
Skýrsla um "Skemmtilegar leikskólalóðir" Staða og endurmat á leikskólalóðum 2026. Lögð fram til samþykktar tillaga að framkævmdum fyrir árið 2026.
Leikskólanefnd þakkar fyrir greinagóða skýrslu og samþykkja tillögu að framkvæmdum fyrir árið 2026.
Þróun og áhrif Kópavogsmódelsins á starfsumhverfi leikskóla.
Leikskólanefnd telur að Kópavogsmódelið hafi skilað mikilvægum árangri og stuðlað að bættum starfsaðstæðum í leikskólum og betri stöðugleika fyrir barnafjölskyldur í bæjarfélaginu. Betur gengur að manna leikskólana, starfsmannavelta er lág og fleiri börn fá því leikskólapláss sem endurspeglast í því að börn allt niður í 14 mánaða aldur hafa fengið leikskólavist. Ekki hefur þurft að loka deild sökum manneklu og meiri fyrirsjáanleiki er í leikskólastarfinu, þetta er afar góður árangur sem við getum verið afar stolt af.