Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 145. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Matthías Páll Imsland - aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hermann Ármannsson - aðalmaður
  • Jóhanna Pálsdóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hreiðar Oddsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Eva Sjöfn Helgadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Karen Rúnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bryndís Baldvinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigríður Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún B I le Sage de Fontenay - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

01

Öryggi leiksvæða í Kópavogi.

Lögð fram skýrsla Umhverfissviðs Kópavogs og Miðstöðvar slysavarna barna um öryggi leiksvæða í Kópavogi, dags. 2. maí 2022

Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri kynnti skýrslu Umhverfissviðs Kópavogs og Miðstöðvar barna um öryggi leiksvæða Kópavogs.

02

Umsókn og endurnýjun á leyfi 2006-2020

Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi lögð fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.

03

Reglur Kópavogsbæjar um dvöl barna hjá dagforeldrum

Dagforeldrar - kynning á reglum um um dvöl barna barna hjá dagforeldrum og eftirliti.

Sviðsstjóri menntasviðs og deildarstjóri leikskóladeildar fóru yfir Reglur Kópavogsbæjar um dvöl barna hjá dagforeldrum og hvernig leyfisveitingu, endurnýjun á leyfi og eftirliti er háttað.

04

Endurskoðun á þjónustusamningi við dagforeldra

Þjónustusamningur við dagforeldra lagður fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir breytingar á þjónustusamningi, enda eru þær gerðar í samræmi við Reglur Kóavogsbæjar um dvöl barna hjá dagforeldri.

05

Umsókn um viðbótar skipulagsdag leikskóla

Leikskólinn Baugur óskar eftir viðbótar skipulagsdegi fyrir skólaárið 2922-2023 vegna námsferðar erlendis.

Leikskólanefnd samþykkir beiðni leikskólans Baugs um viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar erlendis,með fyrirvara um samþykki foreldraráðs, enda samræmist það verklagsreglum um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla Kópavogs.

06

Umsókn um viðbótar skipulagsdag leikskóla

Leikskólinn Núpur óskar eftir viðbótar skipulagsdegi fyrir skólaárið 2922-2023 vegna námsferðar erlendis.

Leikskólanefnd samþykkir beiðni leikskólans Núps um viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar erlendis, enda samræmist það verklagsreglum um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla Kópavogs.

07

Umsókn um viðbótar skipulagsdag leikskóla

Leikskólinn Álfaheiði óskar eftir viðbótar skipulagsdegi fyrir skólaárið 2922-2023 vegna námsferðar erlendis.

Leikskólanefnd samþykkir beiðni leikskólans Álfaheiðar um viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar erlendis, enda samræmist það verklagsreglum um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla Kópavogs.

08

Starfsáætlun Waldorfleikskólans Yls

Starfsáætlun leikskólans Yls fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram til samþykkis.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Yls með fyrirvara um samþykki foreldraráðs.

09

Starfsáætlanir-Baugur 2021-2023

Starfsáætlun leikskólans Baugs fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram til samþykkis.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Baugs.