Leikskólanefnd - 136. fundur
á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sverrir Kári Karlsson - formaður
- Bergþóra Þórhallsdóttir - aðalmaður
- Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaður
- Erla Dóra Magnúsdóttir - aðalmaður
- Eva Sjöfn Helgadóttir - aðalmaður
- Karen Rúnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Jóhanna Pálsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Sigurlaug Bjarnadóttir
Dagskrá fundar
Leikskólastjóri Aðalþings kynnir starfsemi leikskólans.
Leikskólanefnd óskar starfsfólki Aðalþings innilega til hamingju með íslensku menntaverðlaunin sem eru verðskulduð viðurkenning á því faglega starfi sem fram fer innan leikskólans.
Herði Svavarssyni er þakkað kærlega fyrir góða kynningu á hvernig grunnþættir menntunar eru samofnir stefnu leikskólans sem starfar í anda Reggio Emilia.
Tillaga að sumarlokun leikskóla fyrir sumarið 2022 lagt fyrir til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir tillöguna.
Umsókn um viðbótar skipulagsdag leikskólans Grænatúns vegna námsferðar erlendis lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir beiðni leikskólans Grænatúns um viðbótar skipulagsdag vegna námsferðar erlendis, enda samræmist það verklagsreglum um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla með fyrirvara um samþykki foreldraráðs.
Þann 4. nóvember samþykkti bæjarráð að visa drögum að endurskoðaðri lýðheilsustefnu í samráðsferli. Óskað er eftir að leikskólanefnd fjalli um og veiti umsögn um drögin.
Máli frestað.
Starfsáætlun leikskólans Furugrundar fyrir skólaárið 2021-2022 lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Furugrundar fyrir skólaárið 2021-2022.
Starfsáætlun leikskólans Aðalþings fyrir skólaárið 2021-2022 lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Aðalþings fyrir skólaárið 2021-2022.
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.
Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.
Tveir dagforeldrar með langa reynslu óska eftir að fá að starfa saman á sömu starfsstöð tímabundið.
Leikskólanefnd samþykkir beiðni tveggja dagforeldra um að vinna saman á sömu starfsstöð tímabundið, eða til 15. júlí 2022.