Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 64. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Anarkía-listasalur. Styrkumsókn vegna útgáfu bókar með listaverkum félagsmanna

Lista- og menningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum styrk til Anarkíu listsalar vegna útgáfu kynningarrits um félagsmenn og starfsemina en ritinu verður dreift frítt víða um land. Björg Baldursdóttir situr hjá.

02

Cycle 2016

Lista- og menningarráð lýsir yfir mikilli ánægju með CYCLE 2016 og óskar eftir áframhaldandi samstarfi við stjórnendur hátíðarinnar næstu tvö árin. Ráðið felur forstöðumanni menningarmála í Kópavogi að útfæra samkomulag sem verði lagt fyrir ráðið til samþykktar.

03

Menningarstyrkir

Lista- og menningarráð vill endurnýja þriggja ára rekstrarsamninga við kóra og aðra þá aðila sem hafa verið á slíkum samningum undanfarin ár, þ.e.a.s. við Karlakór Kópavogs, Samkór Kópavogs, Kvennakór Kópavogs, Söngvini, kór aldraðra, Ritlistarhóp Kópavogs, Sögufélag Kópavogs og Myndlistarfélag Kópavogs.