Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 69. fundur

Í Bókasafni Kópavogs

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Náttúrufræðistofa Kópavogs.

Lemke Meijer frá Gagarín og Axel Hallkell Jóhannesson fara yfir hugmyndir og tillögur að nýrri útfærslu að sýningu Náttúrufræðistofu Kópavogs. Unnið er að breytingu á sýningu safnsins í svokölluðum jarðfræðigangi og er verkefnið að mestu fjármagnað með styrk úr Safnaráði.

Ráðið þakkar fyrir kynninguna.

02

Karlakór Kópavogs. Umsókn um styrk til greiðslu húsaleigu vegna boðstónleika í Salnum 30. mars 2017.

Ráðið samþykkir að veita 180.000 kr. til verkefnisins.

03

Bókasafn Kópavogs 2017

Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs óskar eftir styrk úr lista- og menningarsjóði til að fjármagna lestrargöngu milli Menningarhúsa Kópavogs og Sundlaugar Kópavogs.

Ráðinu líst vel á verkefnið en óskar eftir ítarlegri kostnaðaráætlun.