Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 91. fundur

á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalmaður
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalmaður
  • Páll Marís Pálsson - aðalmaður
  • Vigdís Ásgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Örn Thorstensen - varamaður

Starfsmenn

    Ritari

    • Soffía Karlsdóttir

    Dagskrá fundar

    01

    Fundir og starfshættir lista- og menningarráðs

    Fundartímar ráðsins.

    Á fyrsta fundi lista- og menningarráðs var Karen Elísabet Halldórsdóttir kosin formaður ráðsins. Varaformaður var kosinn Páll Marís Pálsson.

    Á næstu tveimur fundum ráðsins verða menningarstofnanirnar heimsóttar. Það er fimmtudginn 6. september kl. 17:15 og fimmtudaginn 20. september kl. 17:15. Fundirnir hefjast á Digranesvegi 1.

    02

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða sjóðsins lögð fram. Staðan sýnir að áætlanir fyrir viðburði og verkefni eru innan rammans.

    03

    Dagskrá Menningarhúsa í Kópavogi

    Dagskrá Menningarhúsanna sept.-des. lögð fram til kynningar.

    Lista- og menningarráð lýsir yfir mikilli ánægju með dagskrá menningarhúsanna frá september til desember 2018. Hún er í senn afar fjölbreytt, höfðar til allra bæjarbúa og lýsir miklum metnaði innan málaflokksins.

    04

    Listaverkakaup Gerðarsafns 2018

    Tillögur Gerðarsafns að listaverkakaupum.

    Ráðið samþykkir tillögu forstöðumanns Gerðarsafns um innkaup listaverka eftir listamennina Hólmfríði Árnadóttur, Theresu Himmer, Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur og Ragnheiði Gestsdóttur.

    05

    Reglur um ráðgjafanefnd Salarins

    Starfsreglur um ráðgjafanefnd Salarins og þóknun til nefndarmanna.

    Lista- og menningarráð samþykkir reglur um ráðgjafanefnd Salarins. Ráðið leggur Salnum til kr. 200.000 á ári sem þóknun til nefndarmanna. Greidd verður hlutfallsleg þóknun verði fundað fyrir næstu áramót.

    06

    Reglur um ráðgjafanefnd Gerðarsafns (áður listráð)

    Starfsreglur um ráðgjafanefnd Gerðarsafns og þóknun til nefndarmanna.

    Lista- og menningarráð samþykkir reglur um ráðgjafanefnd Gerðarsafns. Ráðið leggur Gerðarsafni til kr. 200.000 á ári sem þóknun til nefndarmanna. Greidd verður hlutfallsleg þóknun verði fundað fyrir næstu áramót.

    07

    Tíbrá, tónleikaröð. Dagskrá veturinn 2018 - 2019

    Tónleíkadagskráin Tíbrá í Salnum lögð fram til kynningar.

    Lista- og menningarráð telur dagskrá Salarins vandaða og spennandi og lýsir yfir mikilli ánægju með hana.

    08

    Umsókn um styrk vegna uppsetningar dansverka í samvinnu við Salinn og Gerðarsafn

    Styrkþegi óskar eftir breytingu á viðburði.

    Lista- og menningarráði þykir leitt að forsendur fyrir danshátíðinni séu brostnar og óskar öllum sem að henni standa velgengni.