Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 87. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

    Ritari

    • Soffía Karlsdóttir

    Dagskrá fundar

    01

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða sjóðsins lögð fram.

    02

    Heiðurslistamaður Kópavogs 2018

    Auglýsing um Heiðurslistamann Kópavogs 2018 og afhending viðurkenningar.

    Lista- og menningarráð samþykkir að ekki skuli auglýst eftir heiðurslistamanni á sama tíma og auglýst er eftir bæjarlistamanni á þessu ári. Forstöðumanni er falið að endurskoða reglur um útnefningu heiðurs- og bæjarlistamanna.

    03

    Bæjarlistamaður Kópavogs 2018-2019

    Auglýsing um Bæjarlistamann Kópavogs 2018 og afhending viðurkenningar.

    Lista- og menningarráð samþykkir að auglýst verði eftir bæjarlistamanni og skal forstöðumaður menningarmála annast umsóknarferlið.

    04

    Ársskýrsla og starfsáætlun menningarmála Kópavogs 2018

    Kynning á undirbúningi ársskýrslu og starfsáætlun menningarmála Kópavogs

    Í undirbúningi er gerð ársskýrslu fyrir málaflokk menningarmála fyrir árið 2017 og starfsáætlun fyrir árið 2018. Í fyrsta sinn verður gefin út heildstæð skýrsla með samræmdum upplýsingum og útliti fyrir allan málaflokkinn og stofnanir sem heyra undir hann. Lista- og menningarráð fagnar gerð skýrslunnar og þakkar forstöðumanni fyrir frumkvæðið. Gerð skýrslunnar mun skila gegnsærri og skilkvirkari vinnubrögðum.

    05

    Styrkir úr Safnasjóði 2018

    Styrkveiting úr Safnasjóði

    Ráðið fagnar úthlutuninni og vill vekja athygli á því að úthlutun úr Safnasjóði undirstrikar góða menningarstefnu, metnaðarfulla starfsmenn og þýðingarmikið hlutverk menningarhúsa í Kópavogi.