Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 30. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Karen E. Halldórsdóttir kjörin formaður nefndarinnar. Auður Cela Sigrúnardóttir kjörni varaformaður.

Ákveðið að fundartímar verði annan og fjórða hvern fimmtudag í mánuði. Klukkan korter yfir fimm.

Dagskrá fundar

01

Lista- og menningarsjóður og styrkúthlutanir.

Farið yfir stöðu lista- og menningarsjóðs og ákveðið að auglýsa eftir styrkjum fyrir jól þannig að úthlutun geti farið fram í upphafi næsta árs.

02

Umsókn um styrk til að ganga á Kilimanjaro

Ráðið sér sér ekki fært að verða við þessari umsókn.

03

Sótt um viðburðarstyrk vegna tónleika Djeli Moussa Condé í Salnum

Ráðið samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 100.000.

04

Beiðni um lán á Salnum undir sýningu tælenskra dansara 2. september 2014

Afgreiðslu frestað til að kanna betur ýmis atriði um umsóknina.

05

Skýrsla Leikfélags Kópavogs.

Skýrsla lögð fram. Ráðið frestar afgreiðslu árlegs styrks þar til það hefur skoðað ársreikning LK.

06

RIFF kvikmyndahátíð í Kópavogi.

Forstöðumaður Listhúss kynnir dagskrá RIFF í Kópavogi sem hefur verið unnin af RIFF í góðu samráði og samstarfi við forstöðumenn menningarhúsa bæjarins.

07

Ljóðasamkeppnin Ljóðstafur Jóns úr Vör 2011.

Farið yfir hugmyndir að öflugri hátíð. Nánari hugmyndir verða útfærðar á næsta fundi.