Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 88. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

    Ritari

    • Soffía Karlsdóttir

    Dagskrá fundar

    01

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða sjóðsins lögð fram. Lista- og menningarráð vill vekja athygli á og lýsa ánægju með viðburðarröðina Menningu á miðvikudögum sem er vel sótt og afar vel heppnuð.

    02

    Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Kópavogs. Reglur um tilnefningu heiðurslistamanns Kópavogs

    Drög að nýjum reglum um bæjarlistamann Kópavogs og heiðurslistamann Kópavogs

    Lista- og menningarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni menningarmála að ganga frá reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

    03

    Endurnýjun á unglingadeild Bókasafns Kópavogs

    Kynning á hönnun og kostnaðaráætlun við unglingadeild Bókasafnsins.

    Lista- og menningarráð lýsir yfir mikilli ánægju með hönnun og tímabæra endurnýjun á aðstöðu fyrir unglinga í bókasafninu. Hönnunin öll er í takt við nýja tíma og mikilvægt að mæta örfum unglingum núna þegar heimsóknir þeirra í safnið fara stigvaxandi. Ráðið hvetur til þess að farið verði í framkvæmdir hið fyrsta og felur forstöðumanni menningarmála og formanni ráðsins að vinna að framgangi þess.

    04

    Beiðni um rekstrarstyrk fyrir Miðstöð myndlistar og menningar

    Miðstöð myndlistar og menningar í Kópavogi. Ósk um rekstrarstyrk.

    Ráðið frestar málinu og óskar eftir frekari upplýsingum.

    05

    Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

    Karlakór Kópavogs óskar eftir skyndistyrk að upphæð kr. 350.000,-

    Lista- og menningarráð samþykkir að styrkja Karlakór Kópavogs um kr. 350.000 vegna tveggja ókeypis tónleika í tilefni af afmæli bæjarins og kórsins.

    Björg Baldursdóttir fór af fundi kl. 18:05