Lista- og menningarráð - 92. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
- Þórunn Sigurðardóttir - aðalmaður
- Páll Marís Pálsson - aðalmaður
- Vigdís Ásgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Örn Thorstensen - varamaður
- Bergþór Skúlason - varamaður
Starfsmenn
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Dagskrá fundar
Farið yfir stöðu lista- og menningarsjóðs.
Staða sjóðsins lögð fram. Staðan sýnir að áætlanir fyrir viðburði og verkefni eru innan rammans.
Heimsókn og kynning ráðsins á starfsemi Salarins, Bókasafnsins, barnamenningar og viðburða.
Fundarmenn héldu úr fundarsal yfir í Salinn þar sem forstöðumaður menningarmála Soffía Karlsdóttir kynnti málaflokkinn í heild sinni og afhenti kynningarefni. Aino Freyja Jarvela forstöðumaður kynnti starfsemi Salarins. Eftir það var haldið í Bókasafnið þar sem Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður kynnti starfsemi Bókasafnsins. Ólöf Breiðfjörð verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála kynnti þvínæst viðburði og áherslur menningarhúsanna fram að áramótum. Miklar og fjörugar umræður sköpuðust og lýsir ráðið sérstakri ánægju með öfluga menningarstarfsemi og metnaðarfulla stjórnendur.
Beiðni um skyndistyrk vegna tónleikahalds í Salnum.
Lista- og menningarráð getur því miður ekki orðið við beiðni um styrk vegna niðurfellingar eða niðurgreiðslu á leigu í Salnum.