Lista- og menningarráð - 73. fundur
í Salnum, Hamraborg 6
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
- Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
- Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
- Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
- Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
- Þuríður Backman - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Kristín Guðmundsdóttir - starfsmaður nefndar
- Aino Freyja Jarvela - starfsmaður nefndar
- Hrafn Sveinbjarnarson - starfsmaður nefndar
- Kristín Dagmar Jóhannesdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Aino Freyja Jarvela
Dagskrá fundar
Hrafn Sveinbjarnarson forstöðumaður Héraðsskjalasafns fer yfir ýmis mál safnsins.
Lista- og menningarráð þakkar Hrafni Sveinbjarnarsyni fyrir greinargóða kynningu á starfi Héraðsskjalasafns Kópavogs og gerir sér grein fyrir því að safnið þurfi aukið geymslurými á næstu árum.
Farið yfir drög að samningi við Cycle Music and Art Festival til tveggja ára.
Ráðið samþykkir samninginn.
Lögð fram umsókn um skyndistyrk frá Anarkiu.
Lista- og menningarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni að svo komnu máli.
Ráðið ákvarðar upphæð til listaverkakaupa.
Lista- og menningarráð hefur hug á að taka upp að nýju kaup á listaverkum til að efla safnkost Gerðarsafns að fenginni stefnu frá forstöðumanni Gerðarsafns í listaverkakaupum til næstu þriggja ára. Æskilegt væri að fá hugmyndir frá forstöðumanni Gerðarsafns um sýningarhald á safneign á næstu árum. Málið tekið upp að nýju að fengnum upplýsingum frá forstöðumanni.
Ráðið fer yfir tillögur Sigtryggs Baldurssonar bæjarlistamanns.
Ráðið leggur til að bæjarlistamaður vinni úr tillögunum í samráði við Ólöfu Breiðfjörð verkefnastjóra barnastarfs Menningarhúsanna og Aino Freyju forstöðumann Salarins. Í ljósi tillögu bæjarlistamanns um Millaball í Kópavogi leggur ráðið til að tekið verði upp samtal við framkvæmdastjóra Markaðsstofa Kópavogs um mögulega útfærslu á slíkum viðburði.
Aino Freyja, forstöðumaður Salarins, leggur fram drög að dagskrá haustsins í Salnum.
Ráðið bókar að framundan sé mjög metnaðarfull dagskrá í Tíbrá í haust og spennandi barnadagskrá í Salnum.
Rætt um Minnisvarða um Jón úr Vör - Skáldaróm eftir Grím Marínó.
Ráðið vísar málinu til Kristínar, forstöðumanns Gerðarsafns. Óskar ráðið eftir því að forstöðumaður Gerðarsafns formgeri verkið sem gjöf til bæjarins og finni því svo stað í námuda við Menningarhúsin í samstarfi við forstöðumann Bókasafns Kópavogs. Fái tilboð í uppsetningu á verkinu ásamt hreinsun sem svo yrði lagt undir lista- og menningaráð.