Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 145. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Jónas Skúlason - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Jónas Skúlason - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Hauksdóttir - aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason - aðalmaður
  • Ísabella Leifsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Ásta Arnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Soffía Karlsdóttir

Dagskrá fundar

01

Menningarávísun

Hugmyndir til umræðu.

Lista- og menningarráð felur formanni ráðsins og forstöðumanni menningarmála að skoða útfærslur á hugmyndinni.

02

Samræmdur opnunartími menningarhúsanna

Hugmyndir og umræða.

Lista- og menningarráð telur ekki þörf á að samræma opnunartíma menningarhúsanna þar sem starfsemi þeirra er eðlisólík og lítill ávinningur af samræmingunni. Ráðið felur forstöðumanni menningarmála og formanni ráðsins að kanna grundvöll fyrir lengri opnunartíma bókasafnins og Gerðarsafns.

03

Heimsókn lista- og menningarráðs til Náttúrufræðistofu Kópavogs 2022

Kynning á starfsemi Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Máli frestað.

04

Heimsókn lista og menningarráðs á bókasafnið í Kópavogi 2022

Kynning á starfsemi Bókasafns Kópavogs.

Máli frestað.

05

Bókasafnsþjónusta við leikskólabörn og fjölskyldur þeirra í eftri byggðum

Bókasafnsþjónusta við leikskólabörn og fjölskyldur þeirra í efri byggðum.

Lista- og menningarráð felur forstöðumanni menningarmála og forstöðumanni bókasafns Kópavogs að skoða útfærslu á því hvort hægt sé veita bókasafnsþjónustu á leikskólum í efri byggðum. Litið er á þjónustuna sem tilraunaverkefni.

06

Skautasvell og jólabær í Kópavogi 2022

Hugmyndir lagðar fram til umræðu.

Ekki er talið raunhæft að framkvæma hugmyndina með svo skömmum fyrirvara, en umræðan verður tekin upp að nýju í byrjun næsta árs.

Eftirtaldar hugmyndir eru lagðar fram til umræðu sem hægt er að framkvæma 2022:

1. "Jólakort" Kópavogs - þar sem helstu staðsetningar um jólaviðburði koma fram.

2. Jólahús Kópavogs - Samkeppni um jólalegasta húsið í Kópavogi.

Formaður ráðsins fær það hlutverk að útfæra hugmyndina í samstarfi við starfsfólk menningarmála. Lista- og menningarráð telur hugmyndina ekki kalla á sérstaka fjárveitingu, enda fellur hún vel að öðru markaðsstarfi MEKÓ.

07

17. júní 2022

Skýrsla 17.júní 2022.

Máli frestað.

09

Styrkir frá lista- og menningarráði árið 2023

Viðmið í úthlutun styrkja.

Málið rætt.