Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 160. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Elvar Bjarki Helgason - aðalmaður
  • Helga Hauksdóttir - aðalmaður
  • Ísabella Leifsdóttir - aðalmaður
  • Jónas Skúlason - aðalmaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Árni Pétur Árnason - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Brynja Sveinsdóttir - starfsmaður stjórnsýlusviðs
  • Anna Kristín Guðmundsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Anna Kristín Guðmundsdóttir

Dagskrá fundar

01

Skúlptúrgarður við Gerðarsafn

Kynning forstöðumanns Gerðarsafns á hugmyndum um uppsetningu á nýjum skúlptúrgarði við Gerðarsafn.

Lagt fram og kynnt.

Bókun:

"Lista- og menningarráð tekur vel í fyrirhugaðan skúlptúrgarð og leggur áherslu á að endurskipulagning svæðisins sé heildræn og unnin í samstarfi við umhverfis- og samgöngunefnd og skipulagsráð."

02

Endurmótun Náttúrufræðistofu Kópavogs

Kynning forstöðumanns Náttúrufræðistofu Kópavogs á núverandi stöðu og framtíðarsýn Stofunnar.

Lagt fram og kynnt.

03

Umsókn um rekstrarstyrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Styrkbeiðni frá Söngvinum, kór eldri borgara í Kópavogi.

Lista- og menningarráð frestar málinu.

04

Beiðni um kaup á útilistaverki eftir Helgu Sif Guðmundsdóttur

Kópavogsbæ stendur til boða kaup á útilistaverki eftir Helgu Sif Guðmundsdóttur.

Lista- og menningarráð vísar málinu til úrvinnslu forstöðumanns Gerðarsafns.

05

Beiðni um kaup á útilistaverki eftir Geirþrúði Finnbogadóttur Hjörvar

Kópavogsbæ stendur til boða að kaupa útilistaverk eftir Geirþrúði Finnbogadóttur Hjörvar.

Lista- og menningarráð vísar málinu til úrvinnslu forstöðumanns Gerðarsafns.