Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 14. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hildur Einarsdóttir - formaður
- Leifur Andri Leifsson - aðalmaðurBoðaði forföllKristinn Jakobsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Heiðdís Geirsdóttir - aðalfulltrúi
- Friðmey Jónsdóttir - aðalfulltrúi
- Ævar Örn Jóhannsson - aðalmaðurBoðaði forföllThelma Bergmann Árnadóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- María Ellen Steingrímsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllAndrés Pétursson - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Gunnar Guðmundsson
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir
- Ana Tepavcevic
Ritari
- Gunnar Guðmundsson
Dagskrá fundar
Á fundinn mættu Eva Katrín Friðgeirsdóttir og Elísa Víf Kristínardóttir, verkefnastjórar hjá Virkni og vellíðan og kynntu fyrir nefndinni stöðu verkefnisins.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd lýsir yfir ánægju með frábært starf og þakkar Evu Katrínu og Elísu Víf fyrir góða kynningu.
Ana Tepavcevic, verkefnastjóri íþróttadeildar, fór yfir og kynnti fyrir nefndinni Íþróttamessu Kópavogs 2026, sem fram fór í Íþróttahúsi Digranes 29. ágúst.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Önu fyrir góða kynningu og hvetur öll íþrótta- og tómstundafélög í bænum til að taka þátt á næsta ári.
Lagt fram til kynningar verkefnið Barnvænt sveitarfélag.
Lagt fram.
04
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum
Lögð fram fyrirspurn Einars Jóhannesar Guðnasonar bæjarfulltrúa varðandi úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum. En bæjarráð vísaði erindinu til lýðheilsu- og íþróttanefndar.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar erindinu til úrvinnslu á menntasviði.
Lögð fram tillaga frá Samfylkingunni varðandi fjölnota svæði fyrir jaðarsport og tómstundir ungmenna.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til umsagnar á umhverfissviði og menntasviði.
Lögð fram tillaga frá Samfylkingunni varðandi akstur Frístundavagns á föstudögum.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til umsagnar á menntasviði.
Lögð fram tillag frá meirihluta lýðheilsu- og íþróttanefndar um að farið verði í að kortleggja útiæfingatæki/staði í Kópavogi og meta þörf fyrir uppsetningu fleiri tækja/staða.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til úrvinnslu á umhverfissviði og menntasviði.