Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 9. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sverrir Kári Karlsson - formaður
- Helgi Ólafsson - aðalmaður
- Sunna Guðmundsdóttir - varaformaður
- Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður
- Gunnar Gylfason - aðalmaðurBoðaði forföllÞorvar Hafsteinsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi
- Andrés Pétursson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Guðmundsson
- Ana Tepavcevic
Ritari
- Gunnar Guðmundsson
Dagskrá fundar
Lögð fram samantekt íþróttadeildar yfir breytingar á æfingagjöldum íþróttafélaga/-deilda, milli áranna 2024/2025 og 2025/2026 sem unnin var úr innsendum upplýsingum frá félögunum og þeim gögnum sem liggja fyrir á heimasíðum félaganna.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram yfirlit íþróttadeildar yfir reiknaða leigu vegna afnota íþróttafélaga í Kópavogi af íþróttamannvirkjum bæjarins árið 2025.
Yfirlitið er á grundvelli reglna lýðheilsu- og íþróttanefndar um afnot af íþróttamannvirkjum frá 2015. Á móti reiknaðri leigu kemur styrkur frá lýðheilsu- og íþróttanefnd að sömu fjárhæð til viðkomandi íþróttafélags, sem skal færa sem styrk á móti reiknaðri leigu í ársreikningum félaganna.
Reiknuð leiga vegna 2025 er að upphæð 1.834.081.692,- kr. og skiptist hún eftirfarandi á íþróttafélögin:
Breiðablik 748.466.039, HK 685.350.841, Gerpla 310.722.943, Hvönn 11.028.103, Glóð 1.618.743, Stálúlfur 15.884.867, Ísbjörninn 6.143.288, Knattspyrnufélag Kópavogs 845.044, Knattspyrnufélagið Miðbær 8.191.210, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 10.386.356, Skotíþróttafélag Kópavogs 10.238.813, Pílufélag Kópavogs 2.047.763,- og Dansíþróttafélag Kópavogs 1.651.947,-.
Lagt fram.
Lögð fram fjárhagsáætlun íþróttahátíðar 2025 og farið yfir niðurstöður úr kosningu til íþróttafólks Kópavogs 2025.
Lagt fram.
Lagt fram erindi frá Bogfimifélaginu Boganum, dags. 3. desember 2025, þar sem óskað er eftir afnotum af grasæfingasvæði í Fagralundi til að halda Íslandsmeistaramótið í bogfimi 20.-21. júní, 1. Bikarmót BFSÍ 27. júní, Íslandsmót ungmenna 8.-9. ágúst og 2. Bikarmót BFSÍ 16. ágúst.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir erindið með þeim fyrirvara að það rekist ekki á aðra þegar ákveðna viðburði á vellinum.
Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Breiðabliks, dags. 12. janúar 2026, þar sem óskað er eftir afnotum af gras- og gervigrasæfingasvæðum við Smárann fyrir Barcelonaskólann dagana 15.- 19. júní 2026, en skólinn er starfræktur af KAÍ í samstarfi við Breiðablik.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir erindið.
Lagt fram erindi frá skákdeild Breiðabliks, dags. 26. janúar 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá lýðheilsu- og íþróttanefnd vegna alþjóðlegs skákmóts í Kópavogi 10. - 20. mars 2026
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að styrkja mótið að þessu sinni um kr. 500 þúsund.
Lagður fram listi með umsóknum íþróttamanna um styrk úr Afrekssjóði íþróttaráðs fyrir árið 2026.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita afreksstyrk úr Afrekssjóði íþróttaráðs á árinu 2026 til 23 íþróttamanna.
12 hljóta styrk að upphæð 150 þúsund kr. og 11 styrk að upphæð 300 þúsund kr.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Gunnlaugi Árna Sveinssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Kristjáni Sigurðssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd getur ekki orðið við styrkumsókn Helga Bjarnasonar.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Arnari Péturssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd getur ekki orðið við styrkumsókn Styrmis Steins Maack.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Degi Kára Ólafssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Guðfinni Snæ Magnússyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Júlíu Kristínu Jóhannesdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Agnesi Ýr Rósmundsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Þorleifi Einari Leifssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Snævari Erni Kristmannssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd getur ekki orðið við styrkumsókn Sólveigar Freyju Hákonardóttur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Baldri Frey Árnasyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Astrid Daxböck styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Marín Anítu Hilmarsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Hildi Maju Guðmundsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd getur ekki orðið við styrkumsókn Kára Arnarssonar.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Haraldi Birgissyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Sindra Hrafni Guðmundssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd getur ekki orðið við styrkumsókn Birnu Kristínar Kristjánssonar.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Alexander Má Bjarnþórssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Alexander Erni Kárasyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Lilju Katrínu Gunnarsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Thelmu Aðalsteinsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Ingvari Ómarssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Hebu Róbertsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Kristrúnu Ingunni S. Sveinsdóttur styrk úr afrekssjóði að upphæð 150 þúsund krónur.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita Valgarði Reinhardssyni styrk úr afrekssjóði að upphæð 300 þúsund krónur.