Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 11. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Helgi Ólafsson - aðalmaður
  • Sunna Guðmundsdóttir - varaformaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi
  • Andrés Pétursson - áheyrnarfulltrúi
  • Þorvar Hafsteinsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson
  • Ana Tepavcevic
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

01

Kynning á rannsókn um áhrif heimaæfinga á hreysti og velsæld eldra fólks

Á fundinn mættu Elísa Víf Kristínardóttir og Freydís Eiríksdóttir og kynntu fyrir nefndinni rannsókn á áhrifum heimaæfinga á hreysti og velsæld eldra fólks. Rannsóknin fór fram á síðasta ári í samstarfi Virkni og Vellíðan, Velferðasviðs og Háskólans í Reykjavík.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Elísu Víf Kristínardóttur og Freydísi Eiríksdóttur fyrir góða kynningu.

02

Framkvæmdir og viðhald íþróttamannvirkja 2026

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir helstu framkvæmdar- og viðhaldsverkefni á íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2026.

Lagt fram.

03

Áskorun um endurskoðun á reglum um Afrekssjóð

Lagt fram erindi frá Hákoni Ágústssyni og Þóru Kristínu Bjarnadóttur, dags. 13. mars 2026, þar sem óskað er eftir lýðheilsu- og íþróttanefnd endurskoði reglur sínar um Afrekssjóð.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar fyrir erindið. Reglur nefndarinnar eru í sífeldri endurskoðun og verður ábendingin tekin til skoðunar við næstu endurskoðun reglna.

04

Heimsóknir til íþróttafélaga 2022 - 2026

Hnefaleikafélag Kópavogs heimsótt í félagsaðstöðu á Smiðjuvegi.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Hnefaleikafélagi Kópavogs fyrir góða kynningu.